Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.05.1992, Qupperneq 12

Freyr - 15.05.1992, Qupperneq 12
396 FREYR 10.’92 Prjónlesið rennur út Ingibjörg ó Ökrum í Fljótum ó mörg óhugamól og vinnur ótrauð að þeim Ingibjörg Garðarsdóttir á Ökrum í Fljótum er mikil hannyrðakona, afkastamikil við prjónaskap og býr til eigin mynstur. Hún framleiðir aðallega barna- föt og á auðvelt með að selja þau. Hún er áhugasöm um handiðnað, minjagripagerð, útskurð, ullar- meðferð, litun o.fl. og hefur leið- beint á námskeiðum í sinni sveit. Ingibjörg er ráðskona á Ökrum hjá Erni bónda Þórarinssyni. Þessi unga og fjölhæfa kona er kraftmik- il og framtakssöm en einangrun háir henni. Ingibjörg segir: Ég hanna og handprjóna barnafatnað. Ég hef verið að reyna að setja mynstur á blað og í tölvu og systir mín hefur prjónað eftir þeim. Markaður virðist vera óþrjót- andi fyrir barnafatnað og Ingibjörg hefur ekki undan eftirspurn. Hún hefur framleitt leirmuni og selt þá á jólamörkuðum. Tóvinna er eitt aðaláhugamál hennar og hún hefur m.a. áhuga á að vinna með hrossa- hár. Ingibjörg fær smíðaða muni úr tré fyrir sig og prýðir þá á ýmsan hátt með listrænu handbragði. Astvaldur Hjálmarsson, bóndi á Deplum II í Stíflu er maður hagur. Hann smíðar hillur og ílát af gam- alli gerð og kistla, smáa og stóra. Þetta gengur vel út, ekki síst þeir munir sem skreyttir eru mynstri í gömlum stíl, máluðu eða brenndu. Þar hefur Ingibjörg m.a. lagt hönd að verki. Ingibjörg hefur verið að orða það við Astvald að fara að smíða kommóður eins og þær sem voru algengar fyrir hálfri öld og fyrr. Ingibjörg hefur kennt svonefnda Waldorfs-brúðugerð á námskeið- um. Waldorfsskólinn er þýskur uppseldisskóli og Waldorfsbrúður eru viðurkenndar sem uppeldis- leikföng. Hún er með hænsni og m.a. ís- lensk hænsni. Hænsnin hennar ganga frjáls. Varpið gengur mjög vel en stundum verður árans mikil fyrirhöfn að leita að eggjunum. Þær vilja fela þau fyrir mér, segir Ingibjörg. Eggin hennar seljast vel. Fólk sækist líka eftir að eignast íslenska hænunga frá henni svo hún lætur unga út og selur ungana í nágrannasveitir. í nýju gróðurhúsi skammt frá íbúðarhúsinu ræktar hún grænmeti og blóm, aðallega rósir. Ingibjörg vildi láta þess getið að hún og margar aðrar konur kynnu vel að meta frábært starf Ágústu á Refstað að málefnum kvenna. Vaxandi áhugi er á samstarfi meðal kvenna í Fljótum um hand- iðju. Ingibjörg gekkst fyrir því að konur héldu markað á rnunum sínum í grunnskólanum 1. desem- ber í vetur og þó að rnargt væri um Ingibjörg með prjónana. Hún prjónar barnaföt með mynstrum sem hun býr til sjálf. Á innfelldu myndinni heldur Ingibjörg á skildi sem hún skreytti á námskeiði sem haldið var á Löngumýri. Ljósmyndir: Örn Þórarinsson.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.