Freyr - 15.05.1992, Page 42
426 FREYR
10.’92
Á fundi stjórnar Stéttarsambands bœnda 29. apríl sl. gerðist m.a. þetta:
Staða ellilífeyrisþega m.t.t.
búvörusamninga.
Fjallað var um stöðu ellilífeyris-
þega nú þegar orðinn er og enn
frekar á eftir að verða samdráttur á
hefðbundinni búvöruframleiðslu.
Eftirfarandi bókun var gerð:
„Með tilliti til þeirrar erfiðu
stöðu sem skapast hefur vegna
samdráttar í mjólurframleiðslu og
sauðfjárrækt og í kjölfar viðræðna
við landbúnaðarráðherra um þau
mál telur stjórn Stéttarsambands-
ins óhjákvæmilegt að ræða og skil-
greina hverjir skuli fá hlutdeild í
þeim réttindum sem í búvöru-
samningi felast. í því sambandi
kemur til álita hvort þeir bændur
sem rétt eiga á tekjutryggingu al-
mannatrygginga skuli njóta
óskertra réttinda skv. búvöru-
samningi“.
Akveðið var að hreyfa þessu
máli á kjörmannafundum nú í vor
og í framhaldi af því undirbúa mál-
ið fyrir næsta aðalfund.
Úrskurðarnefnd vegna ágrein-
ings vegna greiðslumarks.
Borist hefur bréf frá Landbúnað-
arráðuneytinu um tilnefningu á
manni í nefnd til að úrskurða um
ágreining vegna ákvörðurnar
greiðslumarks.
Ákveðið var að tilnefna Sigurð
Þórólfsson í Innri - Fagradal í
Dalasýslu.
Dómnefnd um
landgrœðsluverðlaun
Kynnt var bréf frá Landgræðslu
ríkisins með ósk um að tilnefndur
yrði fulltrúi í dómsnefnd um land-
græðsluverðlaun.
Ákveðið var að tilnefna Hákon
Sigurgrímsson, framkvæmda-
stjóra.
Endurskoðun laga um
náttúruvernd
Kynnt var bréf frá Umhverfisráðu-
neyti þar sem boðuð er endurskoð-
un laga nr. 47/1991 um náttúru-
vernd að því er varðar hlutverk
Nátturuverndarráðs og stjórn nátt-
úruverndarmála, með hliðsjón af
þeim breyttu aðstæðum sem stofn-
un Umhverfisráðuneytis hefur haft
í för með sér.
Ákveðið er að sem flestum gefist
kostur á að koma á framfæri
ábendingum varðandi verksvið
sitt.
Nokkrar ábendingar og hug-
myndir komu fram á fundinum og
var framkvæmdastjóra falið að
koma þeim á framfæri við nefnd
sem falið hefur verið að undirbúa
lagasetningu.
Bændur
Fjósbitar (slakarmeraðir)
Til notkunar í lausagöngufjósi
Tvær stærðir:
Hæð 12,5 cm - breidd 12 cm - hámarkslengd 220 cm
Hæð 17 cm - breidd 15 cm - hámarkslengd 350 cm
MÖL & SANDUR HF
V/Súluveg • Pósthólf 618 ■ 602 Akureyri • Sími 96-21255 “
Þekking - Reynsla - Þjónusta