Freyr

Volume

Freyr - 15.06.1992, Page 11

Freyr - 15.06.1992, Page 11
12.’92 FREYR 483 Formenn búnaðarsambandanna iL Q ( r m -) -ur„ i f irk i M íp jÆ Jl mé * Hinn29. febrúarsl. komuformenn búnaðarsambandannasaman tilárlegsfundarsínsíBœndahöllinni, enfundir þeirra eru að jafnaði haldnir helgina áður en Búnaðarþing hefst. Að þessu sinni sátufundinn allirformennirnir og var notað tækifœrið og mynd tekin afþeim. Peir eru, taldir frá vinstri: Arnór Gunnarsson, Glaumbœ, form. Bs. Skagfirðinga; Georg Jón Jónsson, Kjörseyri II, form. Bs. Strandamanna; Gunnar Sæmundsson, Hrútatungu, form. Bs. V-Húnavatnssýslu; Pétur Helgason, Hranastöðum, form. Bs. Eyjafjarðar; Jón Gíslason, Stóra- Búrfelli, form. Bs. A-Húnavatnssýslu; KarlS. Björnsson, Hafrafellstungu, form. Bs. Norður-Pingeyinga; Ágúst Sigurðsson, Birtingaholti, form. Bs. Suðurlands; Örn Bergsson, Hofi, form. Bs. A-Skaftafellssýslu; Aðalsteinn Jónsson, Klausturseli, form. Bs. Austurlands; Hálfdán Björnsson, Hjarðarbóli, form. Bs. Suður-Pingeyinga; Bjarni Guðráðsson, Nesi, form. Bs. Borgarfjarðar; Guðbjartur Gunnarsson, Hjarðarfelli, form. Bs. Snœfell- inga; Guðmundur Jónsson, Reykjum, form. Bs. Kjalarnesþings; Valdimar Gíslason, Mýrum, form. Bs. Vestfjarða, og Bjarni Ásgeirsson, Ásgarði, form. Bs. Dalamanna. (Freysmynd). Geislavirkni fram á nœstu öld í Tjernobylslysinu áriö 1986 barst mikið af geislavirkum efnum til Noregs sem einkum féllu til jarðar með úrkomu á hálendi landsins, þar sem búsmali gengur á sumarbeit. Allt frá því slysið gerðist hafa norskir bændur orðið að gera ráð- stafanir til að draga úr geislavirkni afurða af sláturfé. Féð hefur haft aðgang að saltsteini eða því hafa verið gefnar töflur til að minnka upptöku þess af geislavirku efnun- um. Aðalvarnaraðgerðin er þó fólgin í því að féð er fóðrað á húsi í nokkurn tíma fyrir slátrun á meðan geislavirku efnin eru að komast niður fyrir hættumörk. í ljós hefur komið að sveppur sem vex á heiðum uppi og féð sæk- ist eftir inniheldur mun meira af geislavirkum efnum en annar gróður. Ef vaxtarskilyrði eru þannig að sveppurinn vex mikið í ágúst, eykur það verulega á kostn- að við að koma geislavirkninni nið- ur fyrir hættumörk. Landbúnaðarráðuneytið hefur nú ákveðið að bændur beri eftir- leiðis sjálfir aukakostnað af að gera afurðir búfjárins hæfar til manneldis. Áætlað er að ráðstaf- anir þurfi að gera vegna þessarar geislavirni í 20-25 ár. eða nokkuð fram á næstu öld.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.