Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1992, Blaðsíða 27

Freyr - 15.06.1992, Blaðsíða 27
Ný lög um Samkvæmt lögunum er óheimilt að brenna sinu, nema á jörðum sem eru í ábúð og að fengnu leyfi sýslumanns. Brot úr lögunum. Óheimilt er að brenna sinu nema á jörðum sem eru í ábúð eða nýttar af ábúendum lögbýla og þá samkvæmt leyfi sýslumanns,... (úr 1. grein.). Aldrei má brenna sinu þar sem almannahætta stafar af eða tjón getur hlotist af á náttúruminjum, fuglalífi, mosa, lyng- eða trjágróðri og mannvirkjum. (2. grein.) Ábúendur jarða geta einir fengið leyfi til að brenna sinu á jörðum, enda sé það gert fyrir 1. maí ár hvert að uppfylltum skilyrðum í reglugerð, sbr. 4. gr,... (úr 3. grein.) I reglugerð, sem umhverfisráðherra setur að fenginni umsögn Búnaðarfélags íslands og Náttúruvemdarráðs, skal mælt fyrir um hver skilyrði ábúenda, sbr. 3. gr. skuli sett, m.a. um skyldu til að tilkynna hlutaðeigandi slökkviliðsstjóra, eftirlit með brennu og annað sem nauðsynlegt þykir. (4. grein.) Aukin haustbeit kemur í veg fyrir myndun sinu í heimahögum, fer betur með landið og gerir sinubrennslu óþarfa. UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.