Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1992, Blaðsíða 18

Freyr - 15.06.1992, Blaðsíða 18
Hvað svo sem mönnum finnst um þessa niðurstöðu er full ástæða til að taka mark á henni og leitast við að bæta ímynd bændabýla. Það er hins vegar staðreynd að umgengni til sveita hefur batnað verulega, enda allt aðrar aðstæður nú en fyrir nokkrum árum til að fegra umhverfi sitt. Lífskjör hafa batnað, málningarvörur orðið ódýrari og þægilegri í meðförum, sameiginleg sorphirða komin á marga staði og almennt viðhorf til fegrunar og snyrtingar. Nú þegar verkefninu „Hreinir hreppar" er lokið, er þörf á fram- haldi. Þaö erþví fagnaðarefni þeg- ar Búnaðarfélag íslands hefur á- kveðið að halda áróbri fyrir bættri umgengni áfram ogvonandi verb- ur þetta rit liður í þeirri baráttu. Um leiö og nefnd um „Hreina hreppa" þakkar öllum þeim fjöl- mörgu sem tóku þátt í verkefninu, óskar hún þess að sem flestir haldi áfram á þeirri braut sem verkefnið miðaði að. Höfundur er deildarstjóri í Landbúnaðarráðuneytinu. \ Auglýsing Víð viljum minna jarðeigendur á að þeim er skylt að hreinsa burtu aí landi sínu er búfénaður gengur um, ónothæfar vírgirðingar og girðíngaflækjur, sem vera kunna í landi jarða þeirra. Kynnið ykkur girðingarlögin frá 25. mars 1965. Landbúnaðarráðuneytið, 19. júní 1992. V_________________________________________________________________J hlýtur að vera kappsmál bænda og jarðeigenda að sveitir landsins líti vel út. Stöðugt er hamraö á auk- inni umhverfisvernd og bættri umgengni vib náttúruna. Sífellt fjölgar ferðamönnum og öðrum þeim sem um landið fara og ásýnd sveitanna skapar ab verulegu leyti viðhorf landsmanna til þeirra og íslensks landbúnaðar. Á síðasta ári stób Markaðs- nefnd landbúnaðarins fyrir við- horfskönnun til íslensks land- búnabar á vegum Félagsvísinda- stofnunar Háskólans. Þar var m.a. spurt hvort mönnum fyndist um- gengni í kring um sveitabæi á ís- landi almennt vera góð eða slæm. Um 4% töldu hana mjög góba, 29% frekar góba, 27% töldu hana frekar slæma, 6% mjög slæma en 34% tóku ekki afdráttarlausa af- stöðu og töldu umgengnina mjög misjafna. Ef litið er á þá sem segja að umgengnin sé frekar eða mjög slæm meb tilliti til búsetu, sést ab 38% Reykvíkinga telja svo vera, en sama hlutfall fyrir þá sem á lands- byggbinni búa er um 28%. 11% í Gróðrarstöðinni á Hólum í Hjalta- dal - Freysmynd -J.J.D. þeirra sem ab mestu eru aldir upp á höfuðborgarsvæðinu og hafa ekki verib í sveit telja að um- gengnin sé rnjög slæm, en einung- is 3% þeirra sem að mestu eru aldir upp í dreifbýli telja svo vera. 6

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.