Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1997, Page 4

Freyr - 01.05.1997, Page 4
Frá ritstjórn Umhverfismál og ímynd íslands Arið 1987 skilaði nefnd um umhverfismál og þróun á vegum Sameinuðu þjóðanna frá sér skýrslu sem bar heitið: „Sameiginleg framtíð okkar“. Formaður nefndarinnar var Gro Harlem Brundtland, þá forsætis- ráðherra Noregs, og var nefndin kennd við hana. I skýrslunni er komist að þeirri niðurstöðu að fram- leiðslu- og neysluhættir jarðarbúa hafi í för með sér ofálag og skemmdir á náttúrunni. Einnig er í skýrslunni lögð áhersla á að staðbundin umhverfisvandamál og hnattræn séu samtengd og að þörf sé á alþjóðlegum bindandi samningum til að leysa þau. I kjölfar skýrsl- unnar fylgdi mikil umræða og skrif og ráðstefnuhöld víða um heim, m.a. í Bergen í Noregi árið 1990. Þessar ráðstefnur voru hluti af undirbúningi að Ríó-ráðstefnu SÞ árið 1992, sem fulltrúar hátt í 200 ríkisstjóma sátu og 117 þjóðhöfðingjar. Auk þess sóttu ráðstefnuna um 15 þúsund fulltrúar sjálfstæðra samtaka. Meginniður- stöður ráðstefnunnar voru: 1. Ríóyfírlýsingin. Þar eru rakin í 27 liðum þau meg- inatriði sem sérhvert land þarf að bera ábyrgð á í um- hverfismálum sínum. 2. Veðurfarssáttmáii. Markmið með honum er að hafa hemil á lofttegundum sem valda gróðurhúsaáhrif- um í gufuhvolfinu þannig að vistkerfinu sé ekki ógnað. 3. Sáttmáli um fjölbreytileika lífvera. Sáttmálinn leggur grann að varðveislu tegunda jurta og dýía. 4. Stefnumörkun um skógrækt. Stefnumörkunin fjallar um sjálfbæra skógrækt og skógamytjar, bæði hvað varðar umhverfis- og þróunarviðhorf. 5. Verkefnaáætlun fyrir 21. öldina, Agenda 21. Verkefnaáætlun fyrir 21. öldina, Agenda 21, er víð- tæk áætlun, sem skiptist í fjóra kafla. í fyrsta kafl- anum er fjallað um baráttu gegn fátækt, þörf á breytingu á neysluvenjum og að tekið verði mið af umhverfissjón- armiðum við ákvarðanatökur. I öðram kafla era ákvæði um vemdun lofthjúps jarðar, um fjölbreytileika lífvera, baráttu gegn minnkun skóglendis og viðunandi meðferð á hættulegum úrgangi fyrir umhverfið. I þriðja kafla er lögð áhersla á virka þátttöku allra þjóðfélagshópa á stjórn þjóðfélagsins, og m.a. nefnd þar til sögu unga kynslóðin, konur, fólk úr atvinnulífinu, rannsóknarfólk og frjáls félagasamtök. I fjórða kaflanum er fjallað um fjármögnun verkefnaáætlunarinnar, Agenda 21, rannsóknarstarfsemi og gildi alþjóðlegra stofnana. í 28. kafla Verkefnaáætlunarinar er fjallað um stað- bundnar aðgerðir á vegum hennar, þ.e. Lokal Agenda 21, (hér eftir skammstafað LA21). Þar segir m.a.: í síð- asta lagi árið 1996 skulu öll héruð eða sveitarstjórnir í hverju landi, í samráði við íbúana, hafa gert verkefna- áætlun (LA21) fyrir svæði sitt. Þessar verkefnaáætlanir skulu byggðar upp þannig: I fyrsta lagi að koma af stað umræðum. Upplýsingar skulu veittar um stöðu mála og þau vandamál sem við blasa. Tilgangurinn með umræð- unum er að virkja þátttakendur. Virk þátttaka skilar þó engu nema hún leiði til raunveralegra áhrifa þátttakend- anna. Það er fyrst þegar sameiginlegur þekkingargrunn- ur er til orðinn að unnt er að fá alla með til að sameinast um ráð til úrbóta. Forsendan fyrir því að það takist er að: - Fólk sé reiðubúið að taka þátt í og koma af stað um- ræðum um hvernig sveitarfélag þess eða hluti þess geti verið sjálfbært. - Fólk sé reiðubúið að hitta fulltrúa annarra þjóðfélags- hópa og er ljóst að umræða við þá sé nauðsynleg til að tryggja víðsýni. - Fólk aflar sér þekkingar á stöðu umhverfismála í heiminum. í öðra lagi skulu héruðin eða sveitastjómir gera fram- kvæmdaáætlanir. Þessar áætlanir byggjast á sýn íbú- anna um sjálfbæra framtíð. í áætlununum skulu til- greindar fyrstu aðgerðir í hverjum málaflokki. Það mega vera lítil skref en öllum íbúum verði gerð grein fyrir árangrinum. I þriðja lagi er mikilvægt að hefja stærri aðgerðir þar sem vænta má mikils árangurs. Slikar aðgerðir hafa gjaman orðið fordæmi að metnaðarfyllri verkefnum. Stjómvöld hafa oft valið út reynslusveitarfélög til að brjóta ísinn. Reynslusveitarfélögin hafa síðan virkjað þá sem þekkingu og fjármagn hafa til að fylgja í fótspor þeirra. Framhald á bls. 205 172 FREYR-5. ‘97

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.