Freyr - 01.05.1997, Blaðsíða 6
farið var að rækta jarðarber í gróð-
urhúsum í Evrópu, svo að teljandi
sé en fyrstu tilraunir með slíka rækt-
un eru nokkru eldri, eða frá því um
1980 í Hollandi. Aður voru jarðar-
ber eingöngu ræktuð í beðum, undir
dúk, stundum með boga og plastdúk
yfir. Þessi aðferð náði ekki fótfestu
hjá okkur. Innflutningur á ferskum
jarðaberjum hófst hins vegar fyrst
fyrir 3-4 árum hingað til lands.
Hver heldur þú að hafi verið
ástæða þess að þessi innflutning-
ur hófst ekki fyrr?
Hún er e.t.v. sú að verðið á þeim
hingað komnum hefur verið all hátt
og svo er þetta viðkvæm vara. Nú
er hins vegar búið að kenna Is-
lendingum að borða fersk jarðaber
og ryðja að einhverju leyti brautina
fyrir innlendri ræktun.
Hvernig hefur þú komið upp-
skeru þinni á markað?
Hún er ekki mikil enn sem komið
er en henni hefur verið dreift gegn-
um Sölufélag garðyrkjumanna til
verslana og veitingahúsa. Eins og
sakir standa er ég einn um að senda
jarðarber á markað hér á landi. Árni
Hannes Magnússon, garðyrkju-
bóndi hér á Flúðum, sendi ber á
markað fyrir nokkrum árum en gerir
það ekki eins og er.
Þú leggur töluvert undir í þess-
ari ræktun?
Já, vogum vinnur, vogurn tapar,
en þegar ylræktarmarkaðurinn gagn-
vart öðrum hefðbundnum tegund-
um er mettaður, þá verða menn að
prófa eitthvað nýtt. Mér er það hins
vegar ljóst að ef þetta tekst ekki þá
fæ ég skellinn, en ef mér tekst vel
þá ganga aðrir á lagið. Þannig er
það alltaf hér á landi og sjálfsagt
víðar.
Hverjir eru helstu flöskuhálsar
við jarðarberjarækt hér á landi?
Ég held að við glímum við ná-
kvæmlega sömu vandamál og aðrir.
Aðrar þjóðir, t.d. Kanadamenn og
Norðmenn, rækta á álíka norðlæg-
um slóðum. Hollendingar og Belg-
ar eru stærstir í þessu, fyrir utan
ísraelsmenn sem eru allra stærstir í
jarðarberjarækt í gróðurhúsum.
ísraelsmenn eru hins vegar einkum
Flugur sjá um frjóvgun plantnanna.
Myndin er af innfluttu flugnabúi í Silf-
urtúni.
Silfurber frá Silfurtúni.
að verja sig gegn þurrki og skor-
kvikindum alls konar, og svo hagl-
éljum. Við erum hins vegar númer
eitt að hækka hitastigið og svo
stjórna ýmsum þáttum í ræktuninni,
t.d. flugum sem flögra á milli blóma
og bera frjó á milli plantna, en án
þeirra getum við ekki verið og verð-
um að flytja þær inn. Það er hins
vegar ekkert hægt að hafa stjóm á
flugum í jarðarberjabeði.
I gróðurhúsi lokar maður þær
aftur inni á kvöldin og getur nánast
beitt þeim á hvem blett.
Viltu nú lýsa þessari uppbygg-
in^u hjá þér?
í fyrra, 1996, fór ég til Bretlands
til þess að skoða jarðarberjaræktun
þar. Þar kynntist ég manni að nafni
Bemard Sanders, sem er upphafs-
maður að þessu kerfi, þ.e. að rækta
jarðarber í steinull hangandi í pok-
um. Hann er fæddur uppfinninga-
maður og bjartsýnn að eðlisfari,
orðinn 76 ára. M.a. fann hann upp
plastrennilásinn sem er notaður á
umbúðir og hefur efnast vel á hon-
um. Hann tók mér og förunautum
mínum mjög vel og við fengum að
skoða þessar ræktunaraðferðir í
gróðurhúsum þama úti. Síðan feng-
um við ýmsar upplýsingar frá til-
raunastöðvum sem hafa verið að
prófa þessar aðferðir hans.
Þessar aðferðir byggjast á því að
plöntunum er stungið í steinullar-
kubba og þeim raðað í hæð, fjómm
í röð, og síðan kemur vökvunarkerf-
ið efst í pokann og þar er áburður-
inn jafnframt uppleystur í vatninu.
Síðan drýpur þetta niður í pokana
og bleytir upp alla kubbana jafnt.
Ég kaupi í ræktunina plöntur frá
Hollandi, a.m.k. enn sem komið er,
áhættan yrði margföld ef ég ætlaði
að framleiða plönturnar sjálfur.
Síðan þegar blómgun hefst verður
að setja inn flugur, sem er sama
flugutegundin og gamla íslenska
randaflugan, nema hvað þær hafa
verið vandar við að búa í búi. I
hverju búi eru um 140 þemur og ein
drottning. Þetta er sama flugan og
notuð er í tómatarækt, en þar em
mikið færri þernur í hverju búi.
Ef ekki er notuð þessi frjóvgunar-
aðferð þá hafa menn verið að reyna
blástur en munurinn á árangrinum
er eins og svart og hvítt. Ef ekki er
frjóvgað verða a.m.k. 50-60%
berjanna það vansköpuð og Ijót að
þau ná aldrei að verða söluvara.
Hvert flugnabú endist í 6-8 vikur og
það er sami tími og blómgun
stendur yfir.
Fæst eitthvert hunang úr þess-
um búum?
Það getur varla heitið, þó að þess
finnist vottur. Þessar flugur em ekki
að safna hunangi. heldur em þær að
safna frjókomi. Þær bera frjókom
inn í búið handa drottningunni og
hún nærist á því, en það kemur ör-
lítið hunang jafnframt.
Frá því bómið er fullvaxið og
174 FREYR-5. ‘97