Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1997, Blaðsíða 36

Freyr - 01.05.1997, Blaðsíða 36
3 tafla. Yfirlit yfir nýtingu einærs rýgresis á Möðruvöllum 1992 Liður Fyrri umferð Síðari umferð B+B Beitt Beitt B+S Beitt Slegið í rúllur S+B Slegið í rúllur Beitt s+s Slegið í rúllur Slegið í rúllur 4. tafla. Uppskera í fóðureiningum (FE) í einæru rýgresi, miðað við mismunandi nýtingu á Möðruvöllum Liður 1. umf. Fóðureiningar 2. umf AIIs Hlutfall % Kr á* FE Hlutfall % B+B 2.400 260 2.660 54 9,40 100 B+S 2.400 1.500 3.900 80 7,90 84 S+B 3.400 1.200 4.600 94 6,50 69 S+S 3.400 1.500 4.900 100 6,30 67 * Meðalkostnaður. Fastur kostnaður = 25.000 kr á ha, Breytilegur kostnaður = 5,2 kr/FE sem leggst á sláttinn eingöngu. 14. mynd. Uppskera rýgresis við mismunandi notkun á Möðruvöllum 1992. Umræður Sprettuferill sumar- og vetrarrýgresis er nokkuð svipaður en hér koma ekki fram þekktir kostir sumarrýgresisins, sem er mun meira arfaþol vegna hraðari og kröftugri spírunar. Sumarrýgresið hentar því betur við frekar erfið ræktunarskilyrði, t.d. vegna arfamengunar eða þar sem vaxtartíminn er stuttur. Vetrarrý- gresið nýtur sín hins vegar best þar sem vaxtartíminn er langur og fyrri sláttur eða uppskera er tekin snemma á vaxtartímanum. Þar sem er mikil arfamengun er góð aðferð að slá snemma til þess að losna við arfann í stað þess að nota eiturefni. Hinn mikli munur í meltanleika og próteinmagni á milli sumar og vetrarrýgresis vekur nokkra athygli, sérstaklega í endurvextinum. Þess vegna er líklegt að kostir vetrarrý- gresis séu oft vanmetnir þar sem þurrefnisuppskeran er sú viðmiðun sem mest er notuð í samanburði á tegundunum. Kýr geta mjólkað mikið af rýgresi eingöngu. Til dæmis mjólka kýr á Nýja-Sjálandi allt að 1618 kg á dag að jafnaði á mjólkurskeiðinu af rý- gresi eingöngu, eða um 5.000 kg ársnyt. I beitarkerfum erlendis er ekki óalgegnt að mjólkurkýr séu látnar bíta sama rýgresisblettinn margsinnis yfir vaxtartímann án teljandi vandræða. Þess vegna kem- ur nokkuð á óvart að það virðist stórt vandamál hér á landi að fá kýr til að bíta vel endurvöxt eftir beit. Skýringar á þessu geta verið nokkr- ar. Þegar beitarframboð er mikið, eins og var á Möðruvöllum, fæst lé- leg nýting (mjólk) af hektaranum en væntanlega hámarks mjólk úr hverj- um grip. Með því að draga úr beit- arframboði, þ.e. að fjölga kúm á hvern ha, minnkar nyt úr hverri kú en mjólkin af ha eykst þar til ákveðnu marki er náð. Þetta samspil hefur ekkert verið rannsakað hér á landi að því ég best veit, en í Dan- mörku er talið að hagkvæmasta beitarnýtingin sé þegar að kýmar mjólka 45% minna en þær gætu af ótakmarkaðri beit. Forsendur geta hins vegar verið allt aðrar hér á landi. Eitt af stærri beitarvandamálum kúabænda er mitt sumarið, þegar flest túngrös eru farin að spretta úr sér og endurvöxtur er hvergi nægj- anlegur til að halda uppi góðri beit. Eins og fyrr er lýst verður nýtingin á rýgresinu afar slök við þannig notkun. Til þess að þannig ræktun verði sem arðsömust þurfa kýmar að skila hárri nyt og því hugsanlega skynsamlegt að flokka kýrnar á mismunandi beit eftir afurðastigi. Á Möðruvöllum er verið að skoða ýmsa aðra valkosti í miðsumarbeit. Einn álitlegasti kosturinn er að randbeita mjólkurkúm á vallarfox- gras langt fram í júlímánuð, eða þangað til endurvöxtur í túnum er orðinn nægjanlegur og ódýrt græn- fóður, eins og vetrarrepja og næpur, em tilbúnar til beitar. Vallarfox- grasið er mjög orkuríkt og lystugt, auk þess er ekkert annað gras eins uppskerumikið á þessum tíma. Vissulega má búast við skertum endingartíma við þannig meðferð, en engu að síður þarf það ekki að endast í mörg ár til þess að slá út, kostnaðarlega a.m.k., grænfóður- ræktun til miðsumarbeitar. Vetrar- rúgur, sem sáð er að vori, vex mjög hratt og er orðinn beitarhæfur á 50- 60 dögum. Kúnum þykir hann ekk- 204 FREYR - 5. ‘97

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.