Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1997, Blaðsíða 15

Freyr - 01.05.1997, Blaðsíða 15
Frá Fjárræktarbúinu á Hesti Stefán Sch. Thorsteinsson, Sigvaldi Jonsson og Ingi Garðar Sigurðsson, Rannsóknastofnun landbúnaðarins 1995-1996 Haustið 1995 voru settar á vetur 464 ær tvævetur og eldri, 115 lambgimbrar, 13 lambhrútar og 12 hrútar fullorðnir. Fyrir áramót fórust 7 ær, flestar í skurðum fyrir hýsingu, og tvær drápust óbomar á sauðburði. Tvær ásetningsgimbrar misfómst yfir veturinn, ein fyrir áramót en önnur í mars. Tafla 1 sýnir meðalþunga og meðalþyngdarbreytingar 455 áa eftir aldri, sem lifandi vora við maí- vigtun í byrjun sauðburðar, og mynd 1 þunga- og holdaferil þeirra yfir veturinn. Þegar lömb vora tekin undan ám 19. september, vógu æmar 64,2 kg til jafnaðar, sem er 0,5 kg minni þungi en haustið 1995. Meðalholda- stig þeirra var 3,37 stig (holda- stigaskali spannar tölugildi frá 0 lægst til 5 hæst), sem er aðeins 0,02 stigum lægra en haustið áður. Haustmeðferð ánna var hagað á sama hátt og undanfarin haust. Tvævetlum og ám á annan vetur, sem gengu með lömbum, var beitt á há, en aðrar ær vora hafðar í úthaga til 1. nóvemb.er, en þá var farið að gefa öllum ánum út rúllubundið hey (fymingar) og því haldið áfram til hýsingar.Yngri ær vora teknar á hús um miðjan nóvember en þær eldri í lok mánaðarins. Haustþynging ánna og holdabreytingar til desember- vigtunar vora nánast eins og sl. haust. Þyngingin nam nú 4,8 kg til jafnaðar og aukning í holdun 0,23 stigum samanborið við 5,1 kg og 0,25 stig haustið 1995. Frá nóvemberlokum og til fengi- tímaloka bættu æmar 1,7 kg við þunga sinn og við hold sín sem svarar 0,25 stigum. Frá fengitíma- lokum til marsvigtunar þyngdust þær um 5,6 kg og bættu lítillega við hold sín, eða 0,06 stigum, og frá marsvigtun til mánaðamóta apríl- maí þyngdust þær um 6,3 kg, en lögðu hins vegar af sem svarar 0,09 stigum, sem er ámóta aflegging á útmánuðum og undanfama vetur. Þessi aflegging síðustu 8-6 vikumar fyrir burðinn sýnir, að þrátt fyrir ágæta fóðran er fóðurþörfinni til fósturmyndunar tæplega fullnægt til hin ýtrasta og verða því ærnar að taka af forða sínum til að fullnægja henni. Meðalþungi ánna við maívigtun var 82,6 kg, sem er aðeins 0,4 kg minni þungi en sl. vor. Frá hausti til vors þyngjast þær um 18,4 kg sem er 0,1 kg minni þynging en veturinn áður en bættu 0,45 stigum við hold sín á sama tíma, sem er 0,32 stiga meiri holdaaukning en sl vetur. Fóðrun ánna Tafla 2 sýnir meðalfóður ánna gefið á garða á innistöðu , þ.e. frá hýsingu til maíloka. Heyforði búsins var framúrskar- andi að gæðum eins og undanfarin Tafla 1. Þungi og þyngdarbreytingar ánna, kg Aldur Ær á: Tala áa Þungi, kg Þyngdarbreytingar, kg 19/9 16/10 26/11 8/1 19/2 22/3 29/4 19/9- 16/10 16/10- 26/11 26/11 8/1 8/1- 19/2 19/2- 22/3 22/3- 29/4 19/9- 29/4 9 3 67,7 73,3 76,3 74,0 76,0 88,3 95,0 5,6 3,0 -2,3 2,0 12,3 6,7 27,3 8 3 68,7 68,3 72,7 76,7 74,7 78,3 84,7 -0,4 4,4 4.0 -2,0 3,6 6,4 16,0 7 22 67,7 70,8 70.6 73,6 74,7 79,7 87,3 3,1 -0,2 3.0 1,1 5,0 7,6 19,6 6 42 68,5 71,9 71.2 74,6 75,2 80,7 87,0 3,4 -0,7 3,4 0,6 5,5 6,3 18,5 5 61 67,1 71,1 70.8 74,5 74,9 81,2 86,5 4,0 -0,3 3.7 0,4 6,3 5,3 19,4 4 99 66,2 69,7 70,6 72,9 73,6 79,6 85,4 3,5 0,9 2,3 0,7 6,0 5,8 19,2 3 94 63,9 66.7 67,1 69,1 69,2 74,9 80,1 2,8 0,4 2,0 0,1 5,7 5,2 16,2 2 131 59,1 66,9 67,0 66,4 66,7 70,2 78,0 7,8 0,1 -0,6 0,3 3,5 7,8 18,9 Meðaltal 455 64,2 68,8 69,0 70,7 71,1 76,3 82,6 4,6 0,2 1,7 0,4 5,2 6,3 18,4 5. ‘97-FREYR183

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.