Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1997, Síða 22

Freyr - 01.05.1997, Síða 22
Dr. Sturla Friðriksson 75 ára Hinn 4. aprfl sl. efndu Rannsóknastofnun landbún- aðarins og Bændasamtök íslands til fræðslufund- ar til heiðurs dr. Sturlu Friðrikssyni, en Sturla varð 75 ára fyrr á þessu ári. Fundurinn bar yfirskriftina „Bú- skapur og vist á norðurslóð" og tilefni hans var að ný- lega korrí út 10. hefti ritsins „Búvísinda", sem tileink- að er Sturlu, en í ritinu eru birtar 15 fræðigreinar, auk tveggja greina um störf Sturlu og ritverk. Greinamar eru um margvísleg efni á sviði erfðafræði, landbúnað- ar, vistfræði, veðurfræði og jarðfræði. Á fundinum voru flutt níu erindi úr greinum ritsins, þar sem m.a. var fjallað um jurtakynbætur, endingu túngrasa, spírun melfræs, beit á ræktað land, hitafar og gróður, jarðveg og búskaparsögu á Norðurlandi, sinu- bruna og gróðurrannsóknir í Surtsey. Dr. Sturla Friðriksson hóf störf hjá Búnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans, síðar Rannsóknastofnun landbúnaðarins, árið 1950. Þar var hann deildarstjóri Jarðræktardeildar og starfaði óslitið á stofnuninni til ársins 1992. Sturla hefur átt sér fjölbreytt viðfangsefni á starfs- ævi sinni, eins og áðurgreint efni 10. heftis Búvísinda ber með sér. Hann hefur látið náttúruvernd til sín taka, bæði á innlendum og alþjóðlegum vettvangi, og í tengslum við það ferðast til staða á jörðinni sem fáir íslendingar hafa heimsótt, t.d. til Suðurskautslandsins og Galapagoseyja. Sturla hefur verið afkastamikill við ritstörf og liggur eftir hann fjöldi fræðigreina, auk bóka um vistfræði íslands og þróun lífríkis í Surtsey. Þá liggja eftir hann þrjár ljóðabækur. Þar er m.a. að finna eftirfarandi limru, ort á nautaati á Spáni: Á hringleikshúströppunum trónir túristahópur og gónir á kolmannýgt naut, sem kollsteypu hlaut, og kom öllum spánskt fyrir sjónir. Frá frœðslufundinum, hjónin Sturla Friðriksson og Sigrún Laxdal, ásamt dóttur þeirra, Sigrúnu Asu./Freysmynd. 190 FREYR-5. ‘97

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.