Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.1999, Side 12

Freyr - 01.07.1999, Side 12
Ungskógur af lerki í Mjóanesi í Skógum á Fljótsdalshéraði. (Ljósm. Sigurður Blöndal 8/10 1996). rætt um ýmsa iðnaðarstarfsemi og notkun jarðefnaeldsneytis, en stærstur hluti af koltvisýrings- mengun kemur vegna brennslu á því. Ef fískiskipa- og bílafloti landsmanna greiddi t.d. 1-2 krónur af hverjum lítra bensíns til skóg- ræktarverkefna í landinu væri kominn tryggur tekjustofn sem stórauka myndi allt uppbyggingar- starfíð sem framundan er. Af ýmsum ástæðum hafa stjóm- völd verið rög við að taka ákvarð- anir í þessa átt, en það er í raun stór- furðulegt þar sem hér fæm saman mótvægisaðgerðir til að mæta al- þjóðlegum kröfum um útstreymi gróðurhúsalofttegunda og tækifæri til að standa við áratugaloforð um aukna uppgræðslu þessa lands, þar sem eyðimerkurmyndun er á alvar- legu stigi. Auk þessara mikilvægu atriða myndi tekjustofn af þessu tagi styrkja til muna þá stefnu að færa verkefni út í hémðin því að hér væri um að ræða raunverulegt byggðaátak til frambúðar. Við allt þetta bætist síðan sú stað- reynd að landshlutaverkefnunum mun verða ókleift að starfa eftir lögunum við þær aðstæður að þurfa að berjast á hverju ári fyrir fjárveit- ingum. Verkelhunum er skylt sam- kvæmt lögunum að gera langtíma- áætlun, en það er ljóst að slíkt er markleysa ef þeim er ekki tryggður fastur tekjustofn, ekki síst þar sem gert er ráð fyrir því að þau taki í náinni framtíð við úthlutun allra opinberra styrkja til skógræktar á vegum einstaklinga, félagasamtaka og bænda. Landssamtök skógareigenda Fyrir tæpum tveimur ámm vom stofnuð Landssamtök skógareig- enda, (skammstafað LSE). Til- gangurinn með stofnun samtakanna var að sjálfsögðu sá að mynda vett- vang sem eflt gæti trú manna á þá vannýttu auðlind sem bændaskóg- rækt hér á landi er. Þessi auðlind hefur þann stórkostlega kost að geta bæði treyst landsbyggðina og unnið gegn vaxandi mengun og með nýjum lögum er lagður gmnd- völlur að skógrækt sem atvinnu- grein. Á síðasta ári sóttu LSE um aðild að Bændasamtökum íslands. Form- leg aðild var viðurkennd og á fyrsta ári næstu aldar eiga skógar- bændur loks von á því að eiga full- trúa sinn á Búnaðarþingi. Þar með lita samtökin svo á að skógrækt sé formlega orðin viðurkennd sem bú- grein og fagna þeirri samvinnu við bændur og aðra skógræktendur, sem í sjónmáli er. IVIolar Koltvísýringur, lífsnauðsynlegur og lífshættulegur Koltvísýringur, C02, gegnir lykilhlutverki við Ijóstillifun grænna plantna, þegar ólífrænt efni breytist í lífrænt, en einnig við öndun allra lifandi vera, sem anda frá sér koltvísýringi. Við venjulegan lofthita og loftþrýsting er koltvísýringur litlaus lofttegund, með vægt súra lykt og bragð og sameinast vatni í nokkrum mæli. Andrúmsloft inniheldur að jafnaði um 0,03% koltvísýring að rúmmáli. Þyngd þess er 1,5 sinnum meiri en andrúmslofts- ins. Þess vegna er t.d. hlutur koltvísýrings i áburðarkjöllur- um töluvert meiri en annars staðar, þar sem hann myndast í áburðinum. Ef loft, sem menn anda að sér, inniheldur 4-5% C02 verða menn máttlausir og missa smám saman meðvitund. Við 8% C02 í andrúmslofti missa menn með- vitund og deyja á 30-60 mínút- um. Lofttegundin er ekki eitruð í sjálfu sér en hindrar upptöku súrefnis. Til að forðast hættu af völdum koltvísýrings er unnt að bera fyrir sér logandi ljós, en Ijósið deyr ef súrefni er ekki fyrir hendi. Slys af völdum súrefnisleysis hafa komið fyrir í áburðarkjöll- urum, votheysturnum og síldar- eða loðnuþróm. Þá er þekkt að við eldgos geta lægðir í lands- lagi fyllst koltvísýringi og orðið dýrum að fjörtjóni. 12 - FREYR 8/99

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.