Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1999, Blaðsíða 27

Freyr - 01.07.1999, Blaðsíða 27
ing sjúkdómsins venjulega auð- veld. Mörg tilfelli koma þá upp samtímis eða með skömmu milli- bili. Þó getur til dæmis leptospiros- is, smitandi lifrarbólga, og smá- veirusótt sýnt svipuð einkenni. Þeir faraldrar, sem gengið hafa yfir hér á landi, hafa reynst mjög misskæðir og kemur þar fyrst og fremst til sýkingarmáttur veirunnar hverju sinni, sem er mismunandi, frekar en að aðbúð hundanna hafi verið svo mismunandi milli faraldra. Hundar smitast gegnum öndunar- færin enda eru þeir gjarnir á að þefa og snuðra þar sem sjúkir hundar hafa legið eða gert þarfir sinar. Veiran sem veldur hundapest er viðkvæm fyrir flestum sótthreins- unarlyijum en er furðu lífseig utan sjúklinganna, lifír allt að þremur mánuðum í innþomuðum skorpum frá augum og nösum sjúkra hunda. Sjúka hunda verður að hafa inni og hjúkra þeim eins vel og kostur er. Sýkingar, sem koma jafnan í kjölfar veirusýkinganna, má stundum lækna með fúkalyfjum, þó að þau séu óvirk gagnvart veimnni sjálfri. Sýktir hundar mynda mótefni gegn hundapest Um langan aldur hafa menn vitað að hundar, sem lifa af hundapest, eru ónæmir fyrir nýrri sýkingu, venjulega ævilangt. Fljótlega efltir sýkingu myndar hundurinn mótefhi í blóði sínu. Hægt er að mæla þetta mótefni sem hundurinn myndar. Hvolpar undir tíkum fá mótefhi þessi með broddmjólkinni fyrstu daga eftir fæðingu, ef móðurin hef- ur haft hundapest. Víða um lönd hafa farið fram miklar og víðtækar rannsóknir til að framleiða góð og handhæg bóluefni gegn hundapest. Efltir að tókst að rækta hundapestar- veimr í lifandi frumum á sjötta ára- tugnum reyndu menn að framleiða dautt bóluefni en án víðhlítandi árangurs. Því snem menn sér að því að búa til bóluefni úr veikluð- um stofnum sem ekki áttu að geta valdið sjúkdómi en fjölgað sér í hundunum eftir bólusetningu og vakið þar með kröffugt ónæmis- svar. Ónæmisbælandi áhrif þessara bóluefnisstofna er lítið. Mismunandi framleiðendur nota mismunandi stofna við framleiðslu á bóluefni sínu. Því miður er reynslan sú að bóluefhið ver ekki hunda að fullnustu gegn hundapest og ekki fá hundar fulla vöm gegn veikinni fyrr en hálfum mánuði eftir bólusetningu, en stór hluti hundanna verður ónæmur ævilangt gegn hundapest. Þegar hundafár brýst út verður að bólustetja hundahvolpa strax viku- gamla eða svo og endurbólusetja þá eftir 3-4 vikur og því næst þegar þeir era ársgamlir og síðan á tveggja ára fresti. Þessu fylgir mik- ill kostnaður og umstang og nauð- synlegt er að allir hundar séu bólu- settir sem hvolpar. Til að komast hjá mótefhum, sem hvolpar fá frá móður, er stundum notað mislinga- bóluefni sem veitir nokkra vöm. Fyrst eftir bólusetningu með hundapestarbóluefni geta þeir smit- að aðra hunda, jafnvel þó að þeir sýni ekki einkenni um hundapest sjálfir. Best er því að hafa hundinn inni fyrsta hálfa mánuðinn eftir bólusetningu til að forða honum frá öðrum sjúkdómum og vama því að hann dreifi smiti. Nýbólusettir hundar fá oft hitavellu fyrst eftir bólusetningu og stundum bólgu á stungustað. Enn er sá annmarki á þessari gerð bóluefna að bólusettir hundar dreifa veirum í nokkum tíma eftir bólusetninguna. Séu slík- ir hundar innan um hunda, sem engin mótefni hafa gegn hundapest, geta þeir smitast af bólusetningar- veirum. Þessi veira getur svo magnast og valdið útbreiddum sjúkdómi. Þessu líkt gæti ástandið orðið hér á landi. Islensk stjóm- völd hafa reynt að verja landið fyrir hundapest með því að takmarka innflutning hunda og heimta heil- brigðisvottorð, bólusetningu og einangran þeirra ef leyfi er veitt. Þegar hundapest hefur brotist út hafa verið settar reglur um bann við samgangi hunda meðan fárið geng- ur yfir og þar með leitast við að tak- marka fárið og kveða það niður. Hundapest árið 1966 Að lokum skal í stuttu máli greint Tíkin Snúlla á Keldum. Ættmóðir margra íslenskra jjárhunda innanlands og erlendis. FREYR 8/99 - 27

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.