Freyr - 01.07.1999, Blaðsíða 17
lykillinn að velgengni okkar á
þessu sviði. Og víst er að veiðifé-
lögin hafa átt mjög marga góða for-
ystumenn. Þá er einnig vert að
minna á mikilvægan þátt í hinni
hagstæðu þróun en það er hlutur
stangaveiðifélaga og annarra
klúbba stangaveiðimanna, annarra
leigutaka og umboðsmanna við
sölu veiðileyfa innanlands og er-
lendis. Félög eða klúbbar stanga-
veiðimanna hafa starfað víða í þétt-
býli og átt góð samskipti við veiði-
félögin og aðra, sem fara með
veiðiréttindi í ám og vötnum, og
lagt mjög margt mjög gott af mörk-
um í þessu efni.
Þó að íslendingar hafí fyrst og
fremst haslað sér völl á sviði
stangaveiði í ríkum mæli á seinni
hluta þessarar aldar, eru til dæmi
um langa stangaveiðihefð, eins og í
ánum i Borgarfirði, sem fyrr var
getið um. Á seinni árum hafa út-
lendir veiðimenn í vaxandi mæli
lagt leið sina hingað til lands til
veiða enda aðbúnaður og aðstaða
hér fyrsta flokks, að dómi þeirra
sem best til þekkja í þessari grein
ferðaþjónustu. Má benda á grein
eftir höfund þessa spjalls í 10. tbl.
Freys, 1996 um þetta efni sér-
staklega.
Hafbeit til stangaveiði
Þá hefur ýmislegt athyglisvert og
spennandi verið að gerast í sam-
bandi við ræktun og nýtingu vatna-
svæða til laxveiða. Það nýmæli var
tekið upp sem nefnt hefur verið
„hafbeit til stangaveiði“ og eru
Rangámar orðnar þekktastar fyrir
þá aðferð, sem skilað hefur met-
laxaveiði á svæðinu. I Rangánum
hefur lengst af ekki verið um lax-
veiðihefð að ræða því að sjóbirt-
ingur og bleikja vom þar nær alls-
ráðandi en vottur var þar af laxi.
Þeir fiskstofnar höfðu fyrr á ámm
orðið fyrir þungum búsifjum vegna
umbrota í Heklu og má sérstaklega
nefna gosið 1947 sem hófst í mars
það ár. Það olli verulegu tjóni á
svæðinu. Þá barst mikið af ýmsum
gosefnum, eins og vikri i Eystri-
Laxastigi hjá Lagarfossi, neðsti hluti.
(Ljósm. Einar Hannesson).
Veiðihús við Sveðjufoss i Langá i landi Grenja, byggt af enskri konu, frú
Kennard, árið 1927 ogþví i tölu elstu veiðihúsa. Nú í eigu Péturs Snœlands.
(Ljósm. Einar Hannesson).
Ólafur H. Ólafsson veiðir í Fossinum í Elliðaánum. Veiðihús í baksýn.
(Ljósm. Einar Hannesson).
FREYR 8/99 - 17