Freyr - 01.07.1999, Síða 14
1. tafla. Fita og fitusýrur lambakjöti. Fjöldi sýna er 10 í hverju tilfelli.
Fita g/lQOg Omega-3 fítusýmr mg/lOOg Mettaðar fítusýrur mg/lOOg Rannsókn
Hryggvöðvi 1,6 86 666 RALA 1993-95 (2)
Hryggvöðvi 2,7 106 1100 RALA 1993-95 (2)
Læri 7,3 134 3000 TRANSFAIR (4)
Kótilettur 28,0 390 13400 TRANSFAIR (4)
omega-3 fitusýrur eru fyrir hendi
í lambakjöti. Ýmsar hugmyndir
hafa verið uppi þessu tengdar,
svo sem að omega-3 fitusýrur séu
í meira mæli í íslensku lamba-
kjöti en erlendu, fóðrun með
fiskimjöli á meðgöngu skili sér til
fóstursins og að kalt loftslag gæti
aukið myndun ómettaðra fitusýra.
Þá er líklegt að fita í grösum sé
meira ómettuð í köldu loftslagi
en hlýju.
I nokkrum rannsóknaverkefnum
hefur verið leitast við að varpa ljósi
á omega-3 fitusýrur í íslensku
lambakjöti. Verkefnin hafa verið
unnin hjá RALA 1993-1995 (2) og
Lífeðlisfræðistofnun Háskóla ís-
lands 1994-1996 (3). Þá má nefha
Evrópuverkefnið TRANSFAIR,
sem Manneldisráð og RALA áttu
aðild að (4), og loks stórt Evrópu-
verkefni um lambakjöt sem nú
stendur yfir en íslenski hlutinn er á
vegum RALA.
1 Evrópuverkefninu um lamba-
kjöt eru framkvæmdar viðamiklar
fítusýrugreiningar. Fyrstu niður-
stöður benda til þess að omega-3
fitusýrur greininst í lambakjöti
frá öllum sex þátttökuþjóðunum.
Magnið er hins vegar mismun-
andi og er íslenska kjötið meðal
þeirra sýna sem mest mælist í af
omega-3 fitusýrum. Svo virðist
sem fóður frekar en kyn ráði úr-
slitum varðandi þessar fitusýrur.
Verkefnið á eftir að skila mikil-
vægum upplýsingum um fitu-
sýrur í lambakjöti í Evrópu en
niðurstöður munu birtast síðar.
I 1. töflu eru niðurstöður fyrir fitu
og omega-3 fítusýrur úr eldri rann-
sóknum. Þegar sýni eru borin sam-
an kemur í ljós að magn omega-3
fítusýra vex hvergi nærri eins mikið
og fítuinnihaldið. Rétt er að benda á
mikla aukningu á mettuðum fítu-
sýrum með auknu fituinnihaldi.
Omega-3 fítusýrumar koma fyrst
og fremst fram í fosfólipíðum í
vöðva en mjög takmarkað í fituvef.
Niðurstöður úr rannsókn RALA
1993-95 fýrir magn omega-3 fítu-
sýra voru svipaðar erlendum niður-
stöðum. Hins vegar var hlutfall (%)
þessara fítusýra nokkm hærra fyrir
íslenska lambakjötið og var það
rakið til þess hve lítil fíta var inni í
vöðva. Hlutfall ljölómettaðra fítu-
sýra í vöðva lækkaði eftir því sem
meiri fíta var í vöðvanum.
I rannsókn Lífeðlisfræðistofnun-
ar (3) kom fram að omega-3 fítu-
sýra, uppmnnin í plöntum, mælist í
lambakjöti. Langar omega-3 fítu-
sýru,r sem venjulega einkenna
fiskifítu, greindust einnig og höfðu
þær að einhverju leyti myndast úr
plöntufítusýmnni, enda minnkuðu
þær ekki meðan lömbin vora á
sumarbeit. Sú ályktun var dregin að
efnahvatar sem sjá um þessa breyt-
ingu séu virkari í islensku sauðfé en
erlendum fjárstofnum. Samanburð-
ur við niðurstöður frá Nýja-Sjá-
landi og Bretlandi benti til að meira
væri af omega-3 fítusýmm, sem
svara til sjávarfangsfítusýra, í ís-
lenska lambakjötinu. í framhalds-
tilraun var sýnt fram á að nýfædd
lömb hafa fengið omega-3 fítusýmr
frá móður.
Af framansögðu er ljóst að hluti
af omega-3 fítusýmm (og öðrum
ómettuðum fítusýram) sleppur
framhjá lífherslu í vömb og skilar
sér í kjötið. Magn þessara fítusýra
er hins vegar ffemur lítið þegar litið
er á fæðið í heild. Omega-3 fitusýr-
ur er einkum að fínna í físki en
einnig í ýmsum matvælum frá land-
búnaði eins og vikið verður að hér á
eftir.
Omega-3 fitusýrur
finnast víða
Hér á landi hefur fiskimjöl verið
notað í meira magni í fóður en víða
2. tafla. Fita og fitusýrur í nokkrum matvælum.
Fita g/100g Omega-3 fitusýmr mg/lOOg Mettaðar fitusýmr mg/lOOg Rannsókn
Svínakótilettur 17-20 100-500 3000-8000 Transfair (4)
Kjúklingar 12 230 3300 Transfair (4)
Folaldakjöt 13 1900 4900 Transfair (4)
Vínarpylsur 20 270 8000 Transfair (4)
Eldislax 15 1800 2600 Transfair (4)
14 - FREYR 8/99