Freyr - 01.07.1999, Side 35
framtíð og koma fram með tillögur
um það.“
Grasfræ og fóðurræktartilraunir
„Búnaðarþing vill að komið sé á til-
raunum í grasfrærækt og fóðuijurta-
rækt samkvæmt tillögum tilrauna-
stjóra í fóðuijurtarækt.“
Heimild til að kaupa „þúfna-
bana“
„Fari svo, að tilraunir með þúfria-
banann leiði það í ljós, að dómi þar til
kvaddra rnanna, að vélin reynist not-
hæf til jarðræktar hér á landi, heimilar
Búnaðarþing félagsstjóminni að taka
lán, til þess að kaupa vélina og starf-
rækja hana.“
Þingið 1923
Mælt með samþykkt nýrra jarð-
ræktarlaga
„Búnaðarþing skorar á Alþingi að
samþykkja, án stórvægilegra breyt-
inga, frv. það til jarðræktarlaga, sem
nú liggur fyrir þinginu, þar eð búnað-
arþing heíúr gert þær breytingar á lög-
um BI sem atvinnumálaráðuneytið og
landbúnaðamefnd Alþingis hafa sett
að skilyrði fyrir fylgi sínu við Jarð-
ræktarlagaffumvarpið."
Rekstur þúfnabananna
Búnaðarþing samþykkir að gefa fé-
lagsstjóminni heimild til lántöku til
reksturs þúfhabananna, ef þörf krefúr.
Þingið 1925
Klakrannsóknir og klakstöð
Búnaðarþing veitir félagsstjóminni
heimild til að fá klakfræðinginn, Fr.
Reinsch, hingað næstkomandi sumar
til klakrannsókna og að veija allt að
2000 kr. í því skyni.
Búnaðarþing felur félagsstjóminni
að styðja að því að Gísli Ámason
komi bráðlega upp fyrirmyndar klak-
stöð á hentugum stað.
Hentugt búreikningaform
„Búnaðarþing telur rétt að félags-
stjómin vinni að því, að samið verði
hentugt og einfalt búreikningaform,
t.d. með því að heita verðlaunum
fyrir það.“
Tími hestaverkfœra varð ekki langur.
Leiðbeiningar í kartöflu- og
rófnarækt
Búnaðarþing telur nauðsynlegt að
kartöflu- og rófnarækt landsmanna
aukist að miklum mun, og leggur til:
Að gefa búnaðar- eða sveitarfélög-
um kost á mönnum, er leiðbeini í kart-
öflu- og rófnarækt,
Að gera landsmönnum sem greið-
ast fyrir að geta fengið keypt útsæði.
Að stuðla sem mest til þess að
hvatning og fræðsla sé veitt í þess-
um efúum á búnaðamámsskeiðun-
um.
Fyrstu fimm þingin voru
haldin að sumarlagi og
einnigþingin 1913-
1919. Annars hafa
regluleg þing verið
haldin í mánuðunum
febrúar til mars og
einstöku sinnum í apríl.
Þingið 1927
Heyþurrkunarvélar
Búnaðarþing beinir því til stjómar
BÍ að hún láti athuga hvort heyþurrk-
unarvélar séu til erlendis er megi telj-
ast nothæfar hér á landi.
Rannsóknir á veiðivötnum
Búnaðarþing samþykkir tillögur í
sjö liðum í klakmálinu - og um rann-
sóknir á ám og veiðivötnum.
Lokræsapípur
Stjóm BÍ falið að láta rannsaka
helstu leirtegundir hér á landi, með til-
liti til þess hvort þær séu hæfar til
brennslu í lokræsapípur.
Stórvirk skurðgrafa
Stjóminni falið, í samvinnu við
verkfæraráðunaut, að leita upplýsinga
um hvort til muni vera skurðgröfúr
sem geta grafið venjulega mýrar-
skurði (framræsluskurði).
Bóluefni við bráðapest og rann-
sóknir á sauðfjársjúkdómum
Stjóminni falið að láta rannsaka
möguleika á að búa til bóluefni fyrir
bráðapest hér á landi og hvemig koma
megi upp rannsóknastöð í búfjársjúk-
dómum.
Verkfæranefnd
Stjóminni heimilast að skipa
þriggja manna nefnd til að sjá um út-
vegun og tilraunir með verkfæri hér á
landi.
Tilraunastöð á Suðurlandi,
Sámsstaðir
Stjóminni falið að afla fjárffamlags
til væntanlegrar tilraunastöðvar á
Suðurlandsundirlendinu - og henni er
heimilað að festa kaup á jörð fyrir
stöðina. (Sámsstaðir vom keyptir).
FREYR 8/99 - 35