Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 4

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 4
Vopnafjöröur í sókn og vörn Viðtal við Sigríði Bragadóttur, bónda á Síreksstöðum í Vopnafirði Sigríður Bragadóttir hefur búið á Síreksstöðum í Vopnafirói um 20 ára skeið, ásamt manni sínum, Halldóri Georgssyni. A siðasta búnaðarþingi var hún kosin í stjórn Bændasamtaka Islands. Frey fannst þannig við hœfi að kynna hana og sveit hennar, Vopnafjörð- inn, fyrir lesendum blaðsins. Ég er fædd og uppalin í Sand- gerði. Faðir minn hét Bragi Bjöms- son og var skipstjóri alla sína tíð, fæddur í Sandgerði en ættaður af Snæfellsnesi og Miðnesi. Móðir mín hét Rósa Magnúsdóttir og var ættuð frá Ljótarstöðum í Skaftár- tungu og af Miðnesinu. Sandgerði er í Miðneshreppi og hreppurinn skiptist í nokkur hverfí. Þannig var móðir mín úr Bæjarskershverfí, en æskuheimili hennar hét Hólkot og var rétt hjá Bæjarskerjum. Þegar foreldar mínir vom að alast þama upp vora þar allir með búskap, þ.e. kýr fyrir heimilið og kindur, en í æsku minni voru bara einstaka karlar eftir með kindur. Ég elst þama upp og geng þar í unglingaskóla, meira nám var ekki að hafa þar, en síðan var ég í Versl- unarskólanum tvo vetur. Það var inntökupróf inn í hann og sumarið eftir unglingaskólanum var kennari í Sandgerði, Ingi Bergmann að nafni, sem bauðst til að hjálpa mér að komast áfram í námi og kenndi mér íslensku og stærðfræði og honum á ég mikið að þakka. Það var þannig þá á 7. áratugnum að úti á landi, eins og mátti segja um Sandgerði þá, að skólakerfið þar var mikið á eftir Reykjavíkursvæðinu. Við vorum t.d. ekki með sömu skólabækur og í skólum í Reykjavík og jafnaldrar mínir þar voru komnir miklu lengra en ég í námi. Ég fór svo í Verslunarskólann haustið 1963 og var þar tvo vetur. Skólastjóri var þá Jón Gíslason og þéraði alla og maður lærði það af honum og þéraði alla ókunnuga. Ég fór t.d. á síld á Raufarhöfh og sagði við mann þar: „Gætuð þér lánað mér eldspýtur?“ og það var mikið hlegið að mér fyrir það. Skólaganga min varð skemmri en ella fyrir það að ég átti kærasta og við eignuðumst bam þegar ég var 17 ára. Hann varð þó ekki mað- urinn minn, heldur giftist ég fáum árum síðar Halldóri Georgssyni frá Síreksstöðum, en hann var þá flutt- ur til Sandgerðis og starfaði þar. Faðir hans hafði hins vegar byggt nýbýlið Sunnuhlíð, úr Síreksstöð- um, og Halldór er meira og minna alinn upp þar. Við byggðum okkur einbýlishús í Sandgerði og bjuggum þar í 7 ár. Svo datt okkur þetta í hug að flytja Sigríóur Bragadóttir, bóndi á Sireks- stöðum i Vopnafirði. í sveitina. Eiginlega var ég meira áfram um að breyta til en hann því að hann vissi að búskap í Vopna- fírði hafði hnignað og jarðir þar farið í eyði. Við flytjum svo austur kalda vorið 1979. Síreksstaðir höfðu þá verið í eyði í þrjú ár eftir að föðursystkini hans hættu að búa. Astand jarð- arinnar var því ekki gott, hús nánast í niðumíðslu og allt orðið mjög gamalt. Við seldum húsið okkar i Sandgerði og keyptum jörðina með gögnum og gæðum. Það þótti sumum þá skrýtið og fannst við fara á móti straumnum. Við höfum haldið því áffam því að það hafa verið mjög erfið ár í búskapnum síðan. Hvernig búi komið þið upp? Við byrjuðum með sauðfé og ætl- uðum okkur alltaf að einbeita okk- ur að því. En það var erfítt og verð- bólgan rauk upp úr öllu valdi um þetta leyti. Það var engin verð- trygging á eftirstöðvum verðsins á húsinu okkar í Sandgerði og reynd- ar ekki á jörðinni heldur. Þetta var erfitt og þeir peningar sem við ætl- uðum að nota til uppbyggingar á jörðinni urðu nánast að engu. Svo kemur myntbreytingin þama inn í og ég held að einhverjir hafi grætt vel á henni. Þetta fór allt svona og var mjög erfítt. En við vildum reyna að halda áfram. Það var þama gamalt íjós fýrir 7 kýr sem hafði ekki verið notað í mörg ár sem slíkt, heldur fyrir kálfa og kindur. Við ákváðum þá að innrétta það og fengum úthlutað mjólkur- kvóta, sem byrjendur og hann kost- aði þá ekkert. Svo sóttum við um meira og þetta var alltaf óttalegt basl. Síðan sáum við það að við vomm með ónýt fjárhús og þurftum að 4 - Ffi€VR 12/2001

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.