Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 5

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 5
Ibúðarhúsið á Síreksstöðum. (Ljósmyndir tók Halidór Georgsson). byggja ný ef við ætluðum að halda áfram með féð. Við ákváðum þá að gera það ekki en stækka heldur íjósið og stækkuðum það um 9 bása. Það var svolítið sérstakt að við gátum notað gamalt þakjám af fjárhúsunum, því að þama ryðgar ekki jám, sjávarseltan nær ekki til okkar, þama 23 km frá sjó. Þetta fjós varð fljótlega einnig of lítið og við fómm að breyta kálfaplássi fyr- ir kýr og byggja annars staðar yfir kálfana. Núna emm við komin með pláss fyrir 23 kýr og aðstöðu fyrir kálfa. Þegar hér var komið þá áttum við greiðslumark fyrir 100 fjár og seldum það og keyptum mjólkur- kvóta fyrir og þá emm við með tæpa 90 þús. lítra kvóta, sem er of lítið til að hafa framfæri sitt af. Það er heldur ekkert að hafa upp úr nautakjötinu, þannig að maður veit ekkert um framtíðina í þessum efn- um. Hvernig nýtir þú þér þjónustu Bœndasamtakanna? Við emm með i kúaskýrsluhald- inu og sendum mánaðarlega mjólk- urskýrslur til BI, núorðið í tölvu- pósti en áður í pósti. Við emm með kúasæðingar, sem bóndi í sveitinni annast, og höfum sérstakt félag sem sér um þær, Nautgriparæktar- félag Vopnafjarðar. Allar greiðslur til þess frá BÍ koma þó í gegnum skrifstofu Búnaðarsambands Aust- urlands. Hvað eigið þið mörg börn? Við eigum þrjú böm saman og öll mín fjögur böm era dætur og allar fluttar að heiman og búsettar hér og þar á landinu, þannig að við emm orðin tvö ein heima, hjónin. Bú- skapurinn tekur allan okkar tíma ásamt félagsmálastörfum minum. Fyrstu árin unnum við í slámrhús- inu á haustin en við höfum ekki séð okkur það fært í seinni tíð. Hins vegar höfum við um árabil haldið búreikninga, með Búbótar- forritinu og áður með því forriti sem þá var notað. Ég er búin að vera í þessu síðan virðisaukaskatt- urinn kom. í sambandi við það hef ég unnið við að skrá bókhald fyrir bændur í sveitinni. Áður skráði ég fyrir fleiri en með vaxandi tölvu- notkun þá em sífellt fleiri að fara út í þetta sjálfir. Þetta fer til Búnaðar- sambandsins á Egilsstöðum og þaðan til Hagþjónustunnar á Hvanneyri. Það er mjólkursamlag á Vopna- firði? Já, og það er núna í eigu þeirra bænda sem leggja inn í það, en mjólk er nú framleidd á átta bæjum í sveitinni. Þeir mega ekki færri vera, en tveir hættu árið 1999. Mest af mjólkinni er pakkað í dagvörur og við emm með dag- vörumarkaðinn á Bakkafírði og Þórshöfh. Svo er nýlega farið að framleiða súrmjólk, sem blönduð er með bláberjum og ávöxmm og hún hefur tekist mjög vel og verið send lengra til, t.d. í Egilsstaði. I mjólkurbúinu vinna þrír menn, þar af tveir mjólkurfræðingar, auk mjólkurbilstjóra. Þetta er auðvitað erfiður rekstur en mjólkurbúið fær einhvem flutn- ingastyrk, eins og t.d. búið á ísa- firði, sem þjónar litlum markaði. Við emm það mikið út úr að ég sé ekki hagkvæmnina í því að fara að flytja mjólk til okkar langar leiðir, ef þetta bú yrði lagt niður. Ef norð- austurhluti landsins á yfirleitt að vera byggður þá tel ég að það þurfi að reka þar mjólkurbú og við telj- um ekkert áhorfsmál og að þar sé gott að vera eins og annars staðar á landinu. Hvernig er staða byggðar í Vopnafirði, bœði í sveitinni og kauptúninu? Það hefur fækkað fólki þessi rúmu 20 ár sem ég hef búið þama, bæði í sveitinni og þorpinu. Fyrst eftir að ég flutti austur vora í sveit- inni margir ungir bændur og síðan hafa nokkrir nýir tekið við en víða virðist manni að ekki taki nýir við þegar núverandi ábúendur hætta. Ungt fólk hefúr ekki mikinn áhuga á að taka við, sem er eðlilegt, af- koman er ekki svo góð. Sveitaböm- in em alin upp við það að það sé aldrei til peningur. Það er gmnnskóli á Vopnafirði upp í 10. bekk, eftir það verða unglingamir að fara annað i fram- haldsskóla. Egilsstaði, Akureyri eða suður. Þeir hafa þó komið heim á sumrin og haft vinnu en nú síð- ustu tvö sumrin hefur sama og ekk- ert verið fyrir þá að gera heima. Áður var það fiskvinnslan en sl. sumar var t.d. afar lítil bolfisk- vinnsla. Vinna hefur verið að dragast saman í þorpinu að undanfomu. Bæði hefúr fækkað smábátum og sá fiskur, sem hefúr komið að landi, FR€VR 12/2001 - 5

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.