Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 37

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 37
Mynd 1 sýnir kú holdastigaða 1,5 á halarót og setbeinum. mjaltaskeiðinu og hvemig holdafar breytist yfir mjaltaskeiðið. Holda- stigun er mikilvægt hjálpartæki í daglegum ferli mjólkurframleiðsl- unnar. Aðalverkefni sem höfundur þess- arar greinar vann í búvísindadeild við Bændaskólann á Hvanneyri ár- ið 1997 miðaðist að því að útbúa og lýsa holdastigunarkvarða sem nota mætti til að meta holdafar íslenskra mjólkurkúa. Leiðbeinendur vom Bragi L. Olafsson og Gunnar Rík- harðsson. Langflestir holdastigun- arkvarðar byggjast upp á skalanum 1 -5 þar sem 1 táknar grindhoruð og 5 akfeit. Hér verður lýst holdastig- unarkvarða ffá 1-5 þar sem stigað er á 5 stöðum á kúnni (sjá einnig teikningu * Þverþomum * Neðanverðum rifbeinum * Mjaðmahnútu * Halarót * Setbeinum Eftirfarandi vinnureglu skal viðhafa við holdastigun: * Þverþom: Standa við vinstri hlið kýrinnar, leggja vinstri lófa á þverþom 4. og 5. spjaldhryggj- arliðs og meta fitulag á þver- þornum og þverþornsendum með því að þreifa þar. Þannig að þverþomsendar nemi í lófa. * Rifbein: Staðið við vinstri hlið kýrinnar og vinstri lófi lagður neðarlega á öftustu rifbein og þreifað á þeim. * Mjaðmahnúta: Staðið við vinstri hlið kýrinnar og vinstri lófí lagður á mjaðmahnútuna og þreifað á henni. * Halarót: Staðið fyrir aftan kúna og fitulag við halarót metið með fmgmm. * Setbein: Staðið fyrir aftan kúna og vinstri lófi lagður á setbein og fitulag metið með því að þreifa á setbeininu eða báðum setbeinum. Lýsing á holda- stigunarkvarðanum Holdastig 1: Grindhoruð Þverþorn Þverþomin em mjög skörp, eng- in fita finnst og hreyfist húð ekkert ef reynt er að hreyfa hana til. Línan frá hrygg að þverþomsendum er lárétt og myndar eins konar hillu. Rifbein Rifbein sjást greinilega og em mjög skörp, húðin er mjög þunn og hreyfist ekki þegar reynt er að hreyfa hana til. Mynd 2 sýnir kú holdastigaða 2 á haiarót og 2,25 á setbeinum. Mjaðmahnúta Mjaðmahnúta er mjög hvöss og áberandi, húðin hreyfist ekki þegar reynt er að hreyfa hana til. Halarót Húð í kringum halarót er föst og strekkt að mjaðmagrind og hala, engin fita finnst. Mikil gróp er á milli halarótar og setbeina. Setbein Mynd 3 sýnir kú sem er holdastiguð 3,25 á þverþornum, rifbeinumog mjaðma- hnútu, 3 á halarót og setbeinum. FR€VR 12/2001 - 37

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.