Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 20

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 20
Norræni genbankinn fyrir búfé Markmið Norræna genbankans fyrir búfé er að skapa verðmæti með því að varðveita og hagnýta á sjálfbæran hátt erfða- lindir norrænna búfjártegunda. Norræni genbakinn fyrir búfé er og verður lítil stofnun og nytsemi hennar er fólgin í því að ná árangri með markvissu samstarfí við aðila sem tengjast bútjárrækt á öllum Norðurlöndunum, um að varðveita þessa auðlind. Hvers vegna? Á umliðnum árum hefur þróun í búijárrækt á Norðurlöndum leitt til þess að erfðabreytileiki í greininni hefúr minnkað. Það hefúr einkum gerst á þann hátt að virkum kynjum í rækmn hefur fækkað. Haldi þessi þróun áfram mun það leiða til þess að möguleikar á framforum með kynbótum munu dragast saman, þ.e. fjölbreytni erfðaeiginleika mun minnka. Kynbótastarfsemi nú til dags eftir Liv Lonne Dille, upplýsingafulltrúa Merki Norræna genbankans fyrir búfé. byggist á innblöndun nýrra gena, þ.e. notuð eru óskyld kyn í ræktun- inni til að ná fram erfðaframförum. Hvað gerist ef þessi óskyldu kyn hverfa skyndilega af sjónarsviðinu? Eina ráðið er þá að stunda úrval í því kyni sem fyrir er. I ýmsum bú- fjártegundum okkar getur þetta ver- ið vandkvæðum bundið þar sem erfðamengi þeirra hefúr rýmað að íjölbreytileika. Það stafar einkum af gífúrlega mikilli notkun á ein- stökum gripum og einhliða ræktun- armarkmiðum. Afleiðing þessa er aukin skyldleikarækt og þau vanda- mál sem henni fylgja. Líffræðileg- ur fjölbreytileiki og úrvalsmögu- leikar í ræktun í framtíðinni munu að verulegu leyti velta á því sem nú er að gerast. Það er því mikilvægt að fara skynsamlega með það erfðaefni sem við eigum yfir að ráða nú, fyrr en varir getur þurft að grípa til þess. Hver? Norræni genbankinn fyrir búfé var stofnaður árið 1984 og er sam- starfsverkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Norræni genbankinn fyrir búfé starfar sem þekkingarmiðstöð með það að markmiði að skapa verðmæti úr erfðalindum íi búíjár á Norðurlönd- unum. Aðalmarkmið Norræna genbankans fyrir búfé eru: 1. Að hafa með höndum fagþekk- ingu á þeim verðmætum sem fólgin eru í varðveislu og sjálf- bærri nýtingu á erfðalindum bú- fjár. 2. Að auka þekkingu þátttakenda í störfum er varða varðveislu erfðalinda búfjár, sem og al- mennri þekkingu á gildi þeirra. 3. Að stuðla að samstarfí allra þeirra sem tengjast þessu mál- efni, bæði innan hvers þátttöku- lands og á Norðurlöndunum öll- um, til að nýta sem best fræði- lega þekkingu og tiltæka tækni. Gamait norskt fjárkyn, spelsau. islenska fjárkynið rekur uppruna sinn til þess. 20 - FR€VR 12/2001

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.