Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 14

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 14
SUNNA - rekstrarráðgjöf til kúabænda - þann kostnað sem sveiflast með framleiðslumagninu því að þar er að fínna stærstu einstöku kostnað- arliðina, s.s. kjamfóður og áburð. Markmiðið í gegnum allan ferilinn er að hámarka muninn milli bú- greinatekna og breytilega kostnað- arins þannig að búgreinatekjumar aukist án þess að breytilegi kostn- aðurinn hækki hlutfallslega jafn mikið. Þessi mismunur á búgreina- tekjunum og breytilega kostnaðin- um kallast framlegð og hlutfall framlegðar af heildarbúgreinatekj- um nefnist framlegðarstig og em þetta helstu hagfræðihugtökin sem bændur þurfa að temja sér. Framlegðarstig vísar til þess hve mörg prósent af búgreinatekjunum em eftir til að greiða allan þann kostnað sem eftir er þegar búið er að greiða breytilega kostnaðinn. Reynslan hefur sýnt að bú sem hef- Samanburður milli ára, kr/innlagðan líter Tekjur Búgr.tekj. Breytil.kostn. Fastur kostn. Afskriftir Fjárm.kostn. Fjsk.tekjur Framl.stig I □1997 = 119.6361. ■1998= 132.310 I. □ 1999 = 154.226 I. □2000=174.012 1. Mynd 1. Niðurstöðutölur einstakra liða búsins eru settar upp myndrænt og bornar saman við tölur fyrri ára og þannig myndast gott yfirlit yfir rekstur búsins milli ára. SUNNA er heiti á verkefni sem staðið hefur sl. þrjú ár hjá Búnaðarsambandi Suð- urlands. Um átaksverkefni er að ræða eða öllu heldur þróunar- verkefni í ráðgjöf til kúabænda með það að markmiði að veita rekstrarleiðbeiningar um allt sem viðkemur rekstri á kúabúi. Þegar nýr bóndi skráir sig í verk- efnið er fyrst gerður samningur milli viðkomandi bónda og Búnað- arsambandsins um hvaða verk Búnaðarsambandinu er ætlað að vinna og hvaða gögn bóndi skuld- bindur sig til að láta Búnaðarsam- bandinu í té til að gera ráðgjöfun- um kleift að sinna sínu starfi. I SUNNU er lögð á það áhersla að nýta þau gögn sem bændur hafa nú þegar yfir að ráða en bónda er ekki ætluð meiri skráning en nú þegar er gerð. eftir Jóhannes Hr. Símonarson, nautgiparæktar- ráðunaut, Bsb. Suðurlands í upphafi er gerð rekstrargreining á búinu út frá skattframtali og bók- haldi síðasta árs. I greiningunni fást mikilvægar upplýsingar um hvaða til sigurs atriði það væru helst þar sem bónd- inn gæti lækkað kostnað eða hvaða atriði það eru sem helst þurfa skoð- unar við. Sérstök áhersla er lögð á breytilegan kostnað búsins, þ.e. 14 - pR€VR 12/2001

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.