Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 18

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 18
Nautgripasæðingar 2000 r árinu 2000 voru sæddar 23.748 kýr 1. sæðingu eða 81,5% kúa sam- kvæmt talningu haustið 1999. Er þetta örlítil fækkun frá ár- inu á undan eins og sést á töflu 1 og mynd 1. Á mynd 1 má þó sjá að þátttakan er nokkuð sveiflukennd milli ára þó að ávallt hafi hún legið á bilinu rúmlega 81% til tæplega 85% síðustu átta árin. eftir Guðlaug V. Antonsson, Nautastöð BÍ, Hvanneyri Mynd 2 sýnir árangur sæðinga frá 1993 og er hann talsvert sveiflu- kenndur. Árangur sæðinga 2000 var 71,6% sem er 0,4% lakari ár- angur en árið á undan en þó vel viðunandi. Notkun sæðinga er sem fyrr mis- jöfn eftir búnaðarsamböndum. Mest er þátttakan hjá Búnaðarsam- bandi Suðurlands, 91,5% af fram- töldum kúm sæddar, en minnst hjá Norður-Þingeyingum og Stranda- mönnum en á þeim svæðum eru í dag afar fáar kýr og mjólkurfram- leiðsla á mjög fáum búum. Önnur svæði eru með notkun yfir 50% af framtöldum kúm. Af töflu 1 má lesa eftir svæðum fjölda fyrstu sæðinga, fjölda tví- sæðinga, árangur sæðinga og hlut- fallslega notkun af heildarQölda kúa á hverju svæði 1999 og 2000. Á árinu 2000 voru flestar fyrstu sæðingar í desember eða 3738 og í janúar 3320 og voru það jafnframt einu mánuðimir þar sem fyrstu sæðingar voru fleiri en 3000 en fæstar voru fyrstu sæðingar í sept- ember 769 næst fæstar voru þær í október 908, aðrir mánuðir vom allir með fleiri en 1000 fyrstu sæð- ingar. Best héldu kýmar sem sædd- ar vom í september (79,2%), ágúst (78,3%) og júlí (76,5%). Frá upphafi liefur aðaltekjustofn Nautastöðvarinnar verið sá að bún- aðarsamböndin eru rukkuð um ákveðna upphæð fyrir hverja fram- talda kú á sínu svæði á ári, óháð notkun sæðinga á svæðinu. Því liggur í hlutarins eðli að þeim mun almennari sem þátttakan er á svæð- inu því hagstæðari ættu sæðingam- ar að verða. Það er þvi er afar mik- ilvægt fyrir búnaðarsamböndin og ekki síður ræktun íslenska kúa- kynsins að sem allra flestir taki þátt í sameiginlegu ræktunarstarfi, öll- um til hagsbóta. Rétt er að geta þess að Nauta- stöðin innheimtir aðeins fyrir kýr Þátttaka í sæðingum 1993 - 2000 Mynd 1. Árangur sæðinga 1993 - 2000 Mynd 2. 18 - FR€VR 12/2001

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.