Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 9

Freyr - 01.12.2001, Blaðsíða 9
Sigriður á Sireksstöðum við mjaitir. að skipta stigunum milli hjóna. Þetta var að vísu aðeins leyft í tak- markaðan tíma og sumir gerðu það en aðrir ekki og svo var þessu lok- að. Við vildum opna aftur fyrir þetta og kynna það vel þannig að fleiri geti látið skipta stigunum og það var gert. Annars finnst mér að bændur eigi að nýta sér frjálsa lífeyrisspamað- inn sem nú er boðið upp á. Þetta er séreignarlífeyrissjóður og frádrátt- arbær til skatts, þegar greitt er inn eins og aðrar lífeyrisgreiðslur en skattur greiddur þegar útgreiðslur hefjast, en þá geta menn líka nýtt sér persónufrádráttinn til fulls. Nú varst þú kosin í stjórn Bænda- samtakanna á síðasta búnaðar- þingi. Hver er reynsla þín af því? Hún er ekki mikil ennþá, ég hef fengið þar góðar móttökur og það ríkir þar góður starfsandi. Það em mjög fjölbreytt mál sem lögð em fyrir stjóm BÍ, svo sem umsagnir um reglugerðir og lagafrumvörp, þar sem gæta þarf hagsmuna bænda. Oft er einhverjum í stjóm- inni og framkvæmdastjóra falið að fara yfír málin og gera um þau til- lögur. Svo koma skyndilega mál þar sem þarf að bregðast hratt við, svo sem Goða málið í haust, þar sem sauðfjárslátrunin var í uppnámi. Þó að ég hafi enn setið aðeins fáa fundi þá er auðfundið að þama fínna menn vel fyrir ábyrgð sinni. M.E. Molar Pólland býst við miklum stuðningi við landbúnað sinn við inngöngu í ESB Pólland hefiir sótt um aðild að ESB og má búast við að landið verði tekið inn í sambandið árið 2004. Við aðildina væntir Pólland þess að fá rausnarleg framlög úr sjóðum ESB til að færa landbúnað landsins í nútímalegt horf. A hinn bóginn hafa sum aðildar- lönd ESB áhyggjur af að upp- byggingin á landbúnaði í Póllandi verði of kostnaðarsöm fýrir sam- bandið. Þar er Frakkland fremst í flokki. Fulltrúar Póllands í samninga- viðræðunum við ESB telja að beinir styrkir til pólsks landbúnað- ar fyrstu árin séu óhjákvæmileg forsenda þess að þjóðin samþykki aðildina. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hefur jafn- frarnt sagt að stækkun ESB í aust- ur sé óhugsandi án þátttöku Pól- lands. Pólsku samningamennimir telja líklegt að Pólland fái fyrsta árið sem aðildarland aðeins 30% af þeim framlögum til landbúnaðar sem núverandi lönd sambandsins fá, en þetta hlutfall fari síðan hækkandi. Á þetta vilja þeir fall- ast, ef ESB veitir jafnframt styrki til fátækustu héraða Póllands. Um það á eftir að ná samkomulagi. Fyrir hefur legið ákvörðun um að íbúar landa ESB megi ekki kaupa jarðnæði í Póllandi eftir inngöngu þess í sambandið fyrstu 18 árin. Ríkisstjóm Póllands hefur nú fallist á að stytta þann tíma niður í 12 ár og þá hafí viðkomandi kaupandi búið í Póllandi og unnið þar við landbúnað í a.m.k. þijú ár. (Landsbygdens Folk nr. 47/2001). ESB stefnir að skyldumerkingu sauðfjár Embættismannaráð ESB hefur ákveðið að koma á skyldumerkingu á sauðfé í löndum sambandsins. Tilgangurinn með því er einkum sá að fá betra yfirsýn yfir útbreiðslu sjúkdóma eins og gin- og klaufa- veiki og riðu. Sérffæðingar í búfjár- sjúkdómum hafa lagt ffam kröfur um slíka merkingu til að auðveldara verði að rekja dreifingu þessara sjúkdóma í sauðfé til að auðvelda baráttu gegn þeim í ffamtíðiimi. Eftirlitið gegnir jafnframt því hlutverki að fylgjast með árangri af nýrri aðferð við að greina riðu- veikin i sauðfé sem talin er geta komið að gagni við að rannsaka hugsanlegt samband ntilli kúariðu og sauóQárriðuveiki. (Landsbygdens Folk nr. 47/2001). FR€VR 12/2001 - 9

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.