Freyr - 01.12.2001, Page 6
Kýrnar á Síreksstöðum úða i sig fóðurnæpunni.
hefur farið á markað og verið flutt-
ur burtu óunninn. Það koma bara
gámaflutningabílar og flytja þetta
eitthvað burtu.
Eini fiskurinn, sem unninn hefur
verið á Vopnafirði upp á síðkastið,
er Rússafiskur og hann er ekki
stöðugur og stundum enginn. Ein-
hverjar breytingar er þó verið að
gera í sambandi við frystihús Tanga
sem eiga að auka vinnsluna þannig
að það eru vonandi bjartari tímar
framundan.
Hvaóa önnur atvinna er í
þorpinu?
Það er kaupfélag með matvöru-
búð og byggingavöruverslun og
svo er hér sláturhús á vegum Slát-
urfélags Vopnfirðinga, sem bændur
eiga. Svo er önnur matvöruverslun
í eigu einstaklings, sem mjög gott
er að hafa því að þá verður til sam-
keppni. Einnig höfum við fata-
hreinsun, vefnaðarvöruverslun,
apótek, handverkshús o.fl. Annars
eru allar verslanir þama í sam-
keppni við verslanir á Akureyri og
Egilsstöðum. Undanfarin ár hef ég
ekki fundið neinn mun á að versla á
Akureyri eða Vopnafirði þannig að
heimaverslanimar standa sig vel.
Eru allir flutningar orðnir land-
leiðis?
Jú, þetta er mest með bílum, en
smávegis með flugi, t.d. brauð,
annars fáum við líka brauð land-
leiðis frá Þórshöfn þegar farið er
með mjólk þangað. Flutningar á sjó
em nánast horfnir, helst em það
áburðarflutningar á vorin. Það em
engin strandferðaskip lengur.
Opinber þjónusta á Vopnafirði?
Við emm með afar flottan vel út-
búinn skóla. Það er nýbúið að
byggja við hann og nú er öll
kennsla undir sama þaki, en áður
var kennslan á fleiri stöðum. Bóka-
safnið er líka á sama stað og þetta
er til hreinnar fyrirmyndar. Við
höfum líka verið afar heppin með
starfsfólk, sem er bæði heimafólk
og aðkomið.
Svo er þama elliheimili, Sunda-
búð, og heilsugæsla tengd því.
Sundabúð er mjög stór vinnustaður,
ekki síst fyrir konur bæði í heilu
starfi og hlutastörfum. Þama er
ekki biðlisti til að komast inn og
nokkuð um að fólk komi að, t.d. frá
Bakkafirði, sem á líka aðild að
Sundabúðum, og brottfluttir Vopn-
firðingar og nokkrir aðrir sem vant-
ar stað að vera á.
Annað?
Nokkur verktakafyrirtæki em á
staðnum, trésmiðir, bílaverkstæði
og verktaki með steypubíl og efnis-
flutning alls konar. Við emm með
prentsmiðju sem prentar reikninga
o.fl. Fyrir nokkmm ámm vomm
við með blað sem hét Vopnfirðing-
ur og var mjög vinsælt. Það var
rekið á auglýsingum en það var
ekki nógu mikið af þeim svo að út-
gáfan datt upp fyrir. Svo emm við
með lítið auglýsingablað, sem heit-
ir Dropinn. Okkur finnst þessi út-
gáfa ómissandi.
Þið hafi kannski allt eins mikil
samskipti norðurávið og austur á
Hérað og í Egilsstaði?
Já, ekkert síður, en samskiptin
við Egilsstaði hafa þó verið að auk-
ast með tilkomu vegar yfir Hellis-
heiði, en hann er einungis opinn yf-
ir sumartímann. Yfir vetrartímann
sækjum við mestallt norður.
Það em tvö flutningafyrirtæki
sem þjóna Vopnafirði og bílar
þeirra koma bæði Vopnafjarðar-
heiði og strandleiðina, um Sand-
víkurheiði, eftir því hvernig á
stendur.
Er sauðfiárrœktin ekki uppistaða
búskaparins í Vopnafirði?
Nei, ég get varla sagt það. Ég
hefði lagt sauðfjárrækt og naut-
griparækt að jöfnu og svo er þó
nokkur loðdýrarækt, sem hefur
gengið afar vel, einkum í seinni tíð
og er að aukast. Þessi búskapur er á
fjórum jörðum; Engihlíð, Hrísum,
Skjaldþingsstöðum og á Refsstað.
Lengi vel var auðvelt að afla
þama loðdýrafóðurs, meðan bol-
fiskvinnslan hélt í horfinu, en síð-
ustu árin hefur þurft að sækja fisk-
úrgang suður á firði eða norður til
Bakkafjarðar og Þórshafnar.
Tangi hefur sérhæft sig mikið í
uppsjávarfiski, þ.e. loðnu og síld,
en það er ekki gott loðdýrafóður,
því að það er of feitt.
Fóðurstöðin fyrir loðdýrafóðrið
stendur mjög vel og stjómendur
hennar hafa haldið mjög vel á
málum.
Hlunnindi í sveitinni?
Mestu hlunnindi jarða í Vopna-
firði em án efa laxveiðin. Það em
6 - pR€VR 12/2001