Freyr - 01.03.2003, Page 39
það hvemig helst má verjast
tjóni af völdum álfta.
d) Að leyfðar verði á gmndvelli
laga nr. 64/1994 takmarkaðar
og staðbundnar veiðar á álft
sem heldur sig á túnum og ökr-
um.
Samþykkt samhljóða
Nýting sláturúrgangs
Búnaðarþing 2003 hvetur slát-
urleyfíshafa til frekari samvinnu
við fóðurstöðvar í loðdýrarækt um
nýtingu á sláturúrgangi, með það
að markmiði að auka umhverfís-
vemd, lækka sláturkostnað og
lækka verð loðdýrafóðurs.
Greinargerð:
Vemlegt magn sláturúrgangs er
nú urðað, sem fellur illa að nútíma
sjónarmiðum um umhverfisvemd
og endumýtingu verðmæta.
Væntanleg gjaldskylda og hert-
ar kröfur um förgun úrgangs
munu leiða til hærri sláturkostn-
aðar, ef nýjar leiðir til lausnar á
úrgangsmálum sláturhúsa fínnast
ekki.
Nýta má hluta sláturúrgangs í
loðdýrafóður, án mikils auka-
kostnaðar, og er það hagkvæm leið
til að gera úr honum verðmæti.
Samþykkt samhljóða
Útrýming villiminks
Á ÍSLANDI
Búnaðarþing 2003 beinir því til
umhverfisráðherra að villiminkur
á Islandi verði skilgreindur sem
meindýr sem beri að útrýma úr ís-
lenskri náttúm með öllum tiltæk-
um ráðum. Gerð verði áætlun til
nokkurra ára um útrýmingu villi-
minks, skipulag og kostun. Þá er
og gerð krafa um að virðisauka-
skattur af veiðum sé endurgreidd-
ur sveitarfélögum eins og af ým-
issri annarri aðkeyptri þjónustu
þeirra.
Búnaðarþing 2003,
kaflar úr fundargerð
Frh. afbls. 21
framleiðslunni, heldur freista þess
að við gætum aukið söluna, ekki
síst með útflutningi. Þá er sauð-
ljárræktin og verður byggðamál.
Það var aldrei meiningin að að-
laga framleiðsluna eingöngu að
innanlandsmarkaðnum. Með hlið-
sjón af reynslu sinni frá aðalfund-
um bændasamtaka á hinum Norð-
urlöndunum taldi hann ekki skyn-
samlegt að leggja niður eldhús-
dagsumræður í upphafí þings.
Nær væri að reyna að fækka þeim
málum sem tekin eru til meðferð-
ar á þinginu. Ekki hefur verið
fastákveðið að slíta þinginu á
föstudeginum þannig að hægt er
að bæta við laugardeginum ef
með þarf. Við eigum hins vegar
að geta lokið dagskránni sam-
kvæmt áætlun svo að fullur sómi
sé að. Að síðustu velti hann því
fyrir sér hvort í framtíðinni væri
skynsamlegt að gera einn heildar
samning við ríkisvaldið um
starfsskilyrði landbúnaðarins,
ekki síst í ljósi stuðnings sem
flokkast undir bláar og grænar
greiðslur. Það verður að gaum-
gæfa allar hliðar á því máli.
Kosningar:
Kosning löggilts
ENDURSKOÐENDA BÍ
Kosningu hlaut: Sigrún Ragna
Ólafsdóttir, frá Deloitte og Touce,
og Einar Hafliði Einarsson til vara.
Kosning SKOÐUNARMANNS
REIKNINGA BÍ
Kosningu hlaut: Guðmundur
Stefánsson, Hraungerði, og Rögn-
valdur Ólafsson, Flugumýrar-
hvammi, til vara.
Kosning fulltrúa í Háskóla-
ráð Landbúnaðarháskólans
Á Hvanneyri
Kosningu hlaut: Ari Teitsson,
Hrísum, og Guðmundur Jónsson,
Reykjum, til vara.
Kosning fulltrúa í skóla-
NEFND HÓLASKÓLA
Kosningu hlaut: Jóhannes H.
Ríkharðsson, Brúnastöðum, og
Jón Gíslason, Stóra-Búrfelli, til
vara.
Kosning fulltrúa
í SKÓLANEFND
Garðyrkjuskóla RÍKISINS
Kosningu hlaut: Sveinn A. Sæ-
land, Sólveigarstöðum, og Þor-
valdur Snorrason, Hveragerði, til
vara..
Greinargerð:
Minkur (Mustela visori) yar
fyrst fluttur til landsins á Qórða
áratug síðustu aldar til eldis í búr-
um. Innflutningurinn átti sér stað
vegna ákvörðunar íslenskra
stjómvalda og var staðfestur með
viðeigandi lögum. Það em því
stjómvöld sem bera alla ábyrgð á
þeim afleiðingum sem af innflutn-
ingi þessum hefur hlotist.
Þrátt fyrir að ýmsar aðgerðir til
þess að koma í veg fyrir tjón af
völdum villiminks í íslenskri nátt-
úm þá hefur dýmnum fjölgað á
undanfömum ámm, enda em að-
gerðir víða ómarkvissar og ekki
nægjanlegar.
Ekki þarf að fara mörgum orð-
um um það tjón sem þetta að-
skotadýr veldur í íslenskri náttúm,
bæði á fuglalífi svo og á físki-
gengd í ám og vötnum.
Lagt er til að gerð verði fimm
ára áætlun um útrýmingu villim-
inks sem kostuð verði að mestu úr
sameiginlegum sjóði lands-
manna.
Samþykkt samhljóða
Freyr 2/2003 - 39 |