Freyr - 01.01.2002, Qupperneq 12
hagsmunagæslu, ímyndar- og
markaðsvinnu. Þá á ég við að við
getum tekist á við verkefni á
borð við auglýsingaherferðir,
greinaskrif og sýningahald. Eg tel
að framsækin vel útfærð verkefni
þurfí líka að hafa möguleikann á
því að nálgast fjármagn, þannig
þurfum við að eiga eins konar
aflvaka hestamennskunnar.
Hestamennskan er ekki á leið á
ríkisjötuna, í Ataksverkefninu
höfum við það að markmiði að
hjálpa til við að búa til einingar
sem bera sig og að félagskerfi
hestamennskunnar verði öflugt
og geti stutt vel við bakið á
hestamennskunni sem búgrein og
öflugri íþrótt fyrir almenning.”
-Er markaður fyrir íslenska
hestinn erlendis nœr ótakmark-
aður?
„Hestamennskan er vinsælt
sport og góð afþreying. Heilbrigt
líferni, útivera og tengingin við
náttúruna nýtur vaxandi vin-
sælda. í þessu umhverfí finnst
mér að þessi fjölskylduvæni hest-
ur, sem íslenski hesturinn er,
Molar
Gin- og klaufa-
VEIKIFARALDUR í
Bretlandi LIÐINN HJÁ.
Gin- og klaufaveikifaraldurinn,
sem herjaði í Bretlandi á síðasta
ári, er nú liðinn h]á. Ekkert nýtt
tilfelli af veikinni hefur komið upp
frá 30. september á liðnu ári.
Sex milljón dýr alls voru aflifuð
vegna veikinnar á því hálfa ári
sem hún geisaði.
Breska landbúnaðarráðuneyt-
ið telur afar litlar líkur á að veikin
gjósi upp að nýju og sfðustu
sóttvarnarsvæðin verða opnuð
aftur nú um miðjan febrúar. Eftir
það er þess vænst að ESB lýsi
hljóti að hafa mikla möguleika.
Hvort markaðurinn sé ótakmark-
aður, því kann ég ekki að svara.
Þeir sem lifa af hestasölu vita að
þetta er barningur og verður trú-
lega áfram. Eg er sannfærður um
að vel skipulagt, metnaðarfullt
starf allra aðila, þá á ég við sam-
keppnisumhverfið, félagskerfið
og aðkomu hins opinbera, mun
verða til þess að Islandshesta-
mennskan mun aukast jafnt og
þétt.
Við þurfum að vera vel með-
vituð um hlutverk okkar hvert og
eitt, félagskerfi hestamennskunn-
ar, samkeppnisumhverfið og hið
opinbera eigi sína aðkomu að
hestamennskunni og hlutverk
hvers og eins þarf að vera skýrt.
Hestamennska verður að mynda
hið sameiginlega fjármagn sitt og
nota það með vel skilgreindum
hætti.”
Bleikálótt stóð
- Það er talað um að hross á
Islandi séu ofmörg eða á milli
70 og 80 þúsund. Erum við þá
ekki með ofmikið aflélegum
Bretland sem ósýkt af sjúk-
dómnum á ný.
Veikin kom upp í febrúar 2001
og var mikið áfall bæði fyrir
landbúnað og ferðaþjónustu í
Bretlandi. Fram til júní misstu
7800 manns, bændur og menn
sem unnu landbúnaðarstörf, at-
vinnu sína.
Alls kom gin- og klaufaveiki
upp á 2030 býlum í landinu. Af
búfé, sem aflífað var, var um
80% sauðfé. Aflífaðir voru um
595 þúsund nautgripir, 142 þús-
und svín og 2000 geitur. Auk
þess voru um tvær milljónir
gripa aflífaðar í öryggisskyni.
(Landsbygdens Folk nr. 2/2002).
hestum?
„Það má vera að það sé til of
mikið af lélegum hrossum.
A.m.k. er framleitt mikið af
hrossum sem virðist ekki hafa
verið ætlaður neinn tilgangur í
upphafi. Mér þykir þó ekki
ástæða til að amast við því þó að
menn eigi mörg hross, svo fremi
að menn hugsi vel um þau og
landið sem þau ganga á. Hesta-
mennskan er ekki á framfæri hins
opinbera og það á ekki að amast
við hestaeign manna ef vel er að
henni staðið. Það á að vera upp-
hefð í því að eiga stórt og vel hirt
stóð, helst bleikálótt. Ég tel hins
vegar að það þurfi að vera hægt
að grípa inn í ef menn eru að
níða land eða fara illa með hross-
in sín.”
- Efþú lítur á hrossarœktina
almennt í landinu, hvernig stend-
ur hún og á hún bjarta framtíð
fyrir sér?
„Ég er alveg viss um að
hrossaræktin á bjarta framtíð sem
atvinnugrein. Það er ekkert ein-
falt mál að byggja upp gott fyrir-
tæki, ekki heldur um hrossarækt.
Margir sem nú stunda hrossarækt
eru uppaldir í bændasamfélaginu
sem hefur ekki þurft að hafa svo
miklar áhyggjur af markaðssetn-
ingu þeirrar vöru sem þeir fram-
leiða. Hestamenn þurfa að mark-
aðssetja og okkar bíður mikið og
fjárfrekt verkefni. Stór hluti
markaðarins er erlendis, og þess
vegna þurfa hestabændur, sem
vilja geta fylgt vörunni alla leið,
að hafa erlent tungumál á valdi
sínu og geta nýtt sér tölvuna sem
tæki til samskipta. Sérhæfðum
hestabúum fjölgar og það er mik-
il uppbygging í greininni. Það eru
brekkur í þessum rekstri eins og
öðrum, en ég endurtek það að ég
er sannfærður um að hesta-
mennskan á sér glæsta framtíð”,
segir Olafur H. Einarsson. S.dór.
| 8-Freyr 1/2002