Freyr - 01.01.2002, Blaðsíða 15
ráðstefnugesta. Þetta er mjög
áhugavert starf sem fólk er að
vinna víðsvegar um allt land með
hestinn og fatlað fólk. Víða er-
lendis er hesturinn notaður mikið
sem þjálfunartæki við ýmsum
fötlunum sem og til afþreyingar.
HM i Austurríki
Heimsmeistaramótið tókst vel í
alla staði enda komu knapar heim
með fleiri gull en nokkru sinni
áður. Agúst Sigurðsson sagði í
viðtali við Eiðfaxa að aldrei hafi
farið út á Heimsmeistaramót
sterkari sveit kynbótahrossa.
Arangur þeirra var mjög góður, 4
gull af 6 mögulegum. Ágúst
dæmdi kynbótahrossin ásamt
dómurum frá Danmörku, Svíþjóð
og Þýskalandi.
Aðrir knapar stóðu sig mjög
vel en ekki er ætlunin að rekja
úrslitin hér þar sem að þeim hafa
þegar verið gerð góð skil.
Útflutningur
Útflutningur hefur gengið
ágætlega og eru farin út hinn 1.
desember 1706 hross sem er
heldur lakara en í fyrra. í heild
fóru út árið 2000 1897 hross.
Eins og í fyrra hafa flest hross
farið til Svíþjóðar eða um 394,
næstflest hafa farið til Þýskalands
um 303 hross.
Miðað við 1. desember 2001
hefur mesta fjölgunin orðið til
Kanada.
Frá Kjötframleiðendum ehf.
- Hreiðar Karlsson
Kjötframleiðendur ehf. eru að
mestu í eigu búgreinafélaganna.
Félagið var stofnað 1994 en sinn-
ir nú eingöngu útflutningi á
hrossakjöti. Starfsmenn eru þrír í
nálega tveimur stöðugildum og
unnið er á vegum félagsins í
þremur sláturhúsum; á Hvamms-
tanga, Selfossi og Blönduósi.
Af starfinu er það helst að
frétta, að útflutningur hrossakjöts
á okkar vegum verður nokkru
meiri nú í ár en á árinu 2000 og
jafnframt hinn mesti í sögu fé-
lagsins. Slátrað verður tæplega
3300 hrossum á þessu ári til út-
flutnings á kjöti.
Eins og áður fer langmestur
hluti kjötsins á Ítalíumarkað en
einnig hefur nokkurt magn verið
selt til Belgíu og Japan og
vinnsluefni hefur farið til Rúss-
lands. Innleggsverð til bænda er
nú kr. 75á kg en mun væntanlega
verða hækkað á útmánuðum.
Þessa markaði viljum við rækta
til að auka afsetningu og styrkja
starfsemina enn frekar. Til að
svo megi verða er nauðsynlegt að
auka og þróa úrvinnslu í landinu
því að fæstir hrossakjötskaupend-
ur vilja kaupa kjötið alveg óunn-
ið.
Þá er einnig mjög mikilvægt að
sláturhross séu fáanleg á öllum
tímum ársins því að í þessum
viðskiptum eru það kaupendurnir
sem slá taktinn og við seljendur
og framleiðendur þurfum að laga
okkur að óskum þeirra.
Undanfarin tvö ár hafa slátur-
hross verið í boði nánast samfellt
allt árið (einnig á vorin). Hrossa-
bændur eiga heiður og þökk fyrir
þá frammistöðu, sem hefur styrkt
markaðsstöðu þeirra verulega.
Loks skal þess getið, að út-
flutningur á folaldakjöti hefur
farið fram síðan í október. Hér er
um algjöra nýjung að ræða sem
enn er í fremur smáum stfl og
raunverulega á tilraunastigi. Við
leyfum okkur þó að trúa því að
með þróun og þolinmæði geti
þetta orðið arðbær starfsemi og
raunveruleg búbót fyrir hrossa-
bændur. En sama gildir um
framboð á folöldum og fullorðn-
um hrossum að stöðugt framboð,
meðan verið er að vinna nýjan
markað, eykur líkur á að útflutn-
ingstilraunin takist.
Loks má einnig benda á, að út-
flutningur sem þessi hefur einnig
jákvæð áhrif á kjötmarkaðinn
innanlands, samhliða því að
draga úr beitarálagi og stuðla að
gróðurvemd.
Gæðavottun
Sjö hrossaræktarbú fengu við-
urkenningu fyrir gæðastjórnun.
Viðkenningin fæst með því að
standast alla þætti gæðastjórnun-
arkerfísins. Þeir sem hlutu viður-
kenningu í ár em: Bjarni Marons-
son Ásgeirsbrekku, Guðrún
Bjarnadóttir Þóreyjarnúpi,
Haraldur og Jóhanna Hrafnkels-
stöðum, Hólaskóli, Ingimar Ingi-
marsson Ytra-Skörðugili, Jón
Gíslason Hofi í Vatnsdal og að
lokum Keldudalsbúið Keldudal.
Að lokum
Stjóm og starfsfólk Félags
hrossabænda þakkar öllum þeim
sem hafa verið í samskiptum við
okkur, hrossabændur, hrossarækt-
endur, samstarfsaðilar og aðrir
fyrir samstarfið á árinu og óskar
öllum velfamaðar á nýju ári.
Molar
Lamb-borgari
Nýlega setti sænska kjötiðn-
aðarfyrirtækið Scan Foods,
sem er samvinnufyrirtæki í
eigu samtaka þarlendra
bænda, á markað nýja tegund
hamborgara sem framleiddur
er úr lambakjöti og kryddaður
vel með kryddtegundunum ros-
marin, oregano og basilika.
Hamborgarinn eða lamb-
borgarinn, eins og hann er
einnig kallaður, hefur hlotið
góðar móttökur meðal neyt-
enda, segir í sænska búnaðar-
blaðinu Land.
(Bondevennen nr. 2/2002)
Freyr 1/2002-11 |