Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.2002, Blaðsíða 49

Freyr - 01.01.2002, Blaðsíða 49
nefndarinnar og formaður starfs- greinaráðs, Víkingur Gunnarsson, Hólaskóla, og Hulda Gústafsdótt- ir, verkefnisstjóri Átaks- ins. Byrjunin tafðist nokkuð af ýmsum ástæðum (sumarleyfi, tregða á svari frá ráðuneytum) svo að það er ljóst að spýta þarf í lófana. Námsefnið sem um ræðir var að miklu leyti til, en raða þarf því upp og skipuleggja með tilliti til námsskrár, sem er að mestu leyti tilbúin auk meginmarkmiðs náms sem einnig er tilbúið. Hluta efnisins þarf að skrifa frá grunni og aðrir hlutar eru þýddir úr erlendu hliðstæðu námsefni, aðallega úr þýsku, efni sem er mjög áhugavert. Skriftir eru nú langt komnar og svo komið að búið er að skrifa fyrstu þrjú stigin og það fjórða er í vinnslu. Búið er að semja við Pétur Behrens um notkun á myndum teiknuðum af honum inn í námsefnið og eru nú fyrstu þrjú stigin til yfirlestrar hjá viðkomandi aðilum, (reið- kennurum, dýralæknum). Að auki er nauðsynlegt að skólafólk, þ.e. fólk með góða þekkingu á skólakerfinu, fái efnið til yfir- lestrar. Áætlað er að fyrstu þrjú stigin verði tilbúin til tilrauna- kennslu fljótlega upp úr áramót- um á ljósrituðu formi. Áætlað er að fjórða og fimmta stig verði skrifað á fyrstu mánuðum næsta árs og unnin á svipuðu formi. Til er nákvæmt flæðirit aðgerða fyrir þennan málaflokk, auk þess sem grunnur að kostnaðaráætlun hefur verið gerður. Skipulagsmál Á verkefnalistanum er að taka félagskerfi hestamanna til endur- skoðunar og gera tillögur að hag- ræðingu ef þurfa þykir. í þeim tilgangi var settur saman skipu- lagshópur Átaks í hestamennsku sem kom fyrst saman 11. júlí 2001. Hann skipa Jón Albert Sigurbjörnsson, LH, Sigurður Steinþórsson, LH, Kristinn Guðnason, FH, Hulda Gústafs- dóttir, Átaki í hestamennsku, og Ingimar Ingimarsson, gjaldkeri FH. Hlutverk hans er kanna snertifleti og mismun á félögun- um tveimur, Félagi hrossabænda og Landssamtökum hestamanna- félaga, með það að leiðarljósi að reyna að hagræða í rekstri og skipulagi þessara stærstu samtaka hestamanna á landinu. Ákveðið var að Hulda reyndi að fara ofan í saumana á ákveðnum hlutum fram til hausts en að öðru leyti var starfi hans frestað fram á haust vegna anna hópsmeðlima. Á haustdögum var starfi þessu svo haldið áfram. Kanna skyldi og bera saman útgjöld og tekjur beggja félaganna svo og starfs- nefndir og umfang starfs þeirra. Innlegg í þessa vinnu eru erindi sem Sigurður Ragnarsson, stjórn- armaður í LH, og Ingimar Ingi- marsson gjaldkeri FH fluttu á Landsþingi LH um þessi mál og er ljóst að skoðanir bæði innan hópsins sem utan eru mismun- andi á því hvað gera skuli svo að það verður forvitnilegt að fylgjast með framvindu þessa máls. Auk þess var starfsemi hestamannafé- laganna skoðuð, annars vegar, og deilda hrossaræktarsambandanna, hins vegar, og athugað hvað þessi félög gera hvort um sig. Skýrsla skipulagshópsins verður tilbúin á fyrstu dögum ársins 2002 en meginniðurstöður liggja fyrir. Nú er verið að leggja lokahönd á hana og að því búnu verður skýrsla þessi lögð fyrir stjórnir beggja félaganna, LH og FH, til umsagnar og ákvarðanatöku. WorldFengur Á árinu 2000 setti Átaksverk- efnið kr. 15 milljónir til verkefnis sem hlaut nafnið Worldfengur og er alþjóðlegur gagnabanki yfir íslenska hestinn. Nú er svo kom- ið að hann er kominn í gagnið og er nú notaður einn fyrir skýrslu- hald í hrossarækt á íslandi. Að auki eru nokkur lönd búin að skrifa undir þátttökusamninga og er undirbúningsvinna hafin í nokkrum þeirra. Skráning er / þriðja hluta þríþrautarinnar skyldi riðinn 300 metra hringur. Hjá sumum fóru ekki saman leiðarlýsing knapa og hests og enduðu þessir utan brautar og urðu viðskiia. Maðurinn er Fjölnir Þorgeirsson og skal tekið fram að hann er íþróttagarpur mikill og lauk að sjálfsögðu keppni við mikinn fögnuð áhorfenda, varð afsigri í greininni en hlaut í staðinn tilþrifaverðlaun í greininni. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). Freyr 1/2002-45 |
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.