Freyr - 01.01.2002, Side 44
Hestamlðstfið Islands
2001
Starfsemi Hestamiðstöðvar
íslands, (Hmí), árið 2001
var með margbreytilegu sniði.
Nokkur langtímaverkefni eru á
borði Hmí og er oft á tíðum
eins og engin framvinda sé í
þeim, en inni í milli koma sem
betur fer stutt verkefni sem
krydda tilveru starfsmanna.
Stóru verkefnin, sem Iagt var
upp með í upphafi, hafa tekið
sinn tíma og innan skamms
förum við að sjá nánar um
hvernig til hefur tekist með
þau.
Fyrst ber að nefna verkefni
Hmí og Hólaskóla, undir verk-
efnisstjóm Víkings Gunnarsson-
ar, í gæðaátaki á hrossaræktarbú-
um. Þetta verkefni miðar að því
að gera hrossaræktina markviss-
ari og jafnframt hagkvæmari fyrir
hrossaræktandann. Þar hefur nú
verið lokið við fyrstu yfirferð
námskeiða og tóku 11 hrossa-
ræktarbú þátt í þeirri vinnu og
voru menn almennt ánægðir með
hvernig til tókst. Verkefnisstjórn-
in hefur skilað af sér niðurstöð-
um en nú er eftir að ákveða hvort
haldið verður áfram með verk-
efnið og námskeiðin boðin fleiri
aðilum.
Sl. sumar var gerð könnun á
viðhorfi viðskiptavina hesta-
tengdrar ferðaþjónustu. Þessi
könnun er hluti af stóru verkefni
sem ætlað er að gera aðilum í
hestatengdri ferðaþjónustu kleift
að aðlaga þjónustu sína betur að
þörfum neytandans, en það er
fyrsta skrefið í tryggingu gæða á
þjónustu. Niðurstöður könnunar-
innar verða lagðar fram fyrir jól,
en þá hefst vinna við að túlka
þær og vinna hugmyndir að
bættri þjónustu. Má segja að hér
sé verið að búa til verkfæri fram-
tíðarinnar í gæðastýringu innan
ferðaþjónustunnar. Þetta verkefni
er unnið í samvinnu Hólaskóla
og Hmí, en til að útfæra fram-
kvæmdaþáttinn var ráðinn ný-
sköpunamemi sem hlaut styrk til
verkefnisins frá Nýsköpunarsjóði
námsmanna.
SÖGUSETUR ÍSLENSKA HESTSINS
Sögusetur íslenska hestsins var
stofnað á árinu, en að því standa
Hmí, Hólaskóli og Byggðasafn
Skagfirðinga. Starfsemin hefur
farið hægt af stað, en setrið verð-
ur kynnt með pompi og prakt á
ráðstefnu um íslenska hestinn og
hlutverk hans í menningu þjóðar
hinn 8. febrúar nk. á Hólum í
Hjaltadal, en að ráðstefnunni
standa Sögusetrið og Hmí. Unn-
ið er að því að fá rannsóknar-
styrki til setursins, þannig að
starfsemin ætti að fara að komast
á skrið.
Kennsla í reiðmennsku á fram-
haldsskólastigi er eitt af þeim
verkefnum sem lagt var úr vör
með þegar Hmí var stofnuð. Til
stóð að hefja kennslu í faginu
við Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra síðasta vor á Sauðár-
króki, en þegar til átti að taka
var ekki til kennsluefni fyrir fag-
ið. Sama var uppi á teningnum
nú í haust, ásamt því að
hestamennskan virðist ekki
henta formföstu fjárhagskerfi
skólanna, þar sem greiðslur fyrir
kennslu miðast við nemenda-
fjölda, en það er ekki mögulegt
við reiðkennslu. Nýjustu fréttir
af þessu máli eru þær að
kennsluefnið verður tilbúið við
upphaf vorannar 2002, og verið
er að finna lausn á launamálum
kennara, þannig að kennsla geti
hafist í lok janúar.
Eitt af þeim verkefnum, sem
áttu upphafs- og endapunkt á ár-
inu 2001, var námskeið í reið-
þjálfun fatlaðra sem Hestamið-
stöð íslands vann að í samvinnu
við íþróttasamband fatlaðra.
Námskeiðið sóttu um 40 manns
úr hinum ýmsu starfsgreinum,
bæði úr hestamennskunni sem og
úr heilbrigðisgeiranum. Fyrirles-
ari á námskeiðinu var Ellen
Trætteberg, norskur sjúkraþjálfari
við Beitostölen Helsesenter í
Noregi, en það setur er þekkt
fyrir notkun sína á hestum við
þjálfun fatlaðra. Vel var látið af
námskeiðinu sem endaði með
málstofu þar sem tekið var á
ýmsu varðandi reiðþjálfun. Mikil
umfjöllun hefur verið um nám-
skeiðið og vonumst við til að það
komi af stað frekari umræðu um
hestinn sem hjálpartæki fyrir fatl-
aða.
I 40-Freyr 1/2002