Freyr - 01.01.2002, Page 54
slægjast og þá sérstaklega með
það fyrir augum að geta nýtt
mælingarnar betur til að skoða
ungviði og velja úr því.
Litir
Eftir að tekið var upp á því að
flokka liti eftir ákveðnu kerfi
höfum við ágætlega glöggt yfirlit
um litasamsetningu íslenska
hrossastofnsins á hverjum tíma.
Þetta kerfi er þó ekki nægilega
útfært til að hægt sé að skrá allar
mögulegar samsetningar lita og
því nauðsynlegt að útvíkka það
enn frekar en eina leiðin til þess
er að stækka kódann úr 4 tölum í
5-6.1 3. töflu er gefið yfirlit um
tíðni helstu lita hjá folöldum
fæddum árið 2000.
Sjá má í 3. töflu að tíðni lit-
Molar
IKEA Á TEINANA
Sænski verslunarrisinn IKEA
er nú með áætlanir ( gangi um
að taka upp járnbrautaflutninga í
auknum mæli á vörum sínum.
Fyrirtækið hyggst stofna sitt eigið
járnbrautaflutningafyrirtæki með
rétti til slíkra flutninga um 18
Evrópulönd. Á hverjum degi
sendir fyrirtækið yfir 1000 flutn-
íngavagna milli verksmiðja, vöru-
geymslna og vöruhúsa sinna í
mörgum löndum. Það markmið
hefur verið sett að 40% af þes-
sum flutningum fari fram sem
járnbrautaflutningar.
(Bondevennen nr. 2/2002).
Ræktun korns og
OLÍUJURTA TIL
ELDSNEYTISFRAMLEIÐSLU
Embættismannaráð ESB hefur
samþykkt að eftir 10 ár verði á
markaði í aðildarlöndum sam-
bandsins bensín og díselolía þar
anna er svipuð fyrir folöld fædd
2000 eins og kom fram fyrir
stofninn í heild frá því það var
kannað 1998. Helst er að greina
að hlutfallslega fleiri grá folöld
fæðist þetta árið og áfram er
lítið af litföróttu og ástæða til að
hvetja menn óspart til að reyna
að fjölga þeim lit. Þar reynir á
að setja á litförótt hross, temja
þau og helst að koma með til
dóms. Rétt að minna á að
sýningargjöld fyrir litförótt
hross fást endurgreidd og fyrstu
þrír litföróttu stóðhestarnir, sem
ná þeim árangri að komast á
landsmót sem einstaklingar, fá
vel útilátin peningaverðlaun.
Frambærilegustu litföróttu
hryssunum þarf að halda undir
allra bestu stóðhesta landsins til
sem 8-10% eldsneytisins verði
framleidd úr jurtum. Tillaga
þessi kemur í kjölfar þeirra um-
hverfisvandamála sem bílaum-
ferðin hefur skapað í Evrópu
sem og ákvarðana um að veita
nokkrum fyrrum austantjalds-
löndum aðild að sambandinu.
Ætlunin er að taka í ræktun
ræktunarland sem liggur ónotað
og nota það til að rækta jurtir
sem nýtast sem hráefni til elds-
neytisframleiðslu, svo sem korn
og olíujurtir.
(Bondevennen nr. 2/2002).
Kýr valda
GRÓÐURHÚSAÁHRIFUM
Við meltingu losna lofttegundir
sem eiga þátt í því að auka
gróðurhúsaáhrif á jörðinni. Eink-
um eru nautgripir stórtækir í
þessum efnum og það er einkum
metan, (CH4) sem þeir gefa frá
sér sem valda þessum áhrifum.
Reiknað hefur verið út hve
að freista þess að ná fram veru-
lega góðum kynbótagrip með
þessum lit. Aðrir litir sem eru
fágætir, eins og t.d. albínóar, eru
hins vegar í engri útrýmingar-
hættu því að þar er til nægilegt
hráefni til að kalla fram litinn,
þ.e. þau hross sem bera í sér
leirljósa erfðavísinn.
Af því sem komið hefur fram
hér í greininni þá er skýrsluhald-
ið ómetanlegt tæki til að halda
utan um upplýsingar um íslenska
hrossastofninn, en betur má ef
duga skal Fleiri þætta þarf að
taka til skoðunar því að traustari
grunn þarf undir hagnýta úr-
vinnslu gagnanna og eins þurfa
hrossaræktendur að taka við sér
og huga betur að skráningu
hrossa sinna.
mikið af gróðurhúsaáhrifum sem
einstök lönd valda á andrúmsloft-
inu, stafa frá landbúnaði þeirra.
Efst á þeim lista er Nýja-Sjáland,
en þar eiga 55% gróðurhúsaáhrif
þann uppruna. Næsta kemur ír-
land með 31%, Ástralía með
19% og Danmörk 16%.
Risafyrirtækið Fanterra, sem
rekur fjölda mjólkursamlaga á
Nýja-Sjálandi, hefur áhyggjur af
því hvernig komið er í þessum
efnum vegna skuldbindinga
landsins samkvæmt Kyoto sam-
komulaginu um verndun
andrúmsloftsins. Samkvæmt
skýrslu sem tekin hefur verið
saman þarf að leggja niður helm-
ing af þarlendum mjólkuriðnaði
ef landið á að draga úr gróður-
húsaáhrifum sínum á árunum
2008-2012 niður í það sem þau
voru árið 1990, eins og Kyota-
bókunin mælir fyrir um.
(Internationella Perspektiv
nr. 39/2001).
| 50-Freyr 1/2002