Freyr - 01.01.2002, Side 58
um skilyrðum á skráningu, þ.e.
skráningu á fyljun, fangi og ör-
merkingu. Þannig er með auð-
veldum hætti hægt að sjá hvort
folöld eru gæðavottuð eða ekki
og sjá gögnin sem standa að baki
vottuninni.
Annar stór þáttur í WorldFeng
eru kynbótasýningar. I upphafi
ársins 2002 er þeim þætti að
mestu lokið. Þannig geta aðildar-
lönd FEIF, sem eru áskrifendur
að WF, skráð inn kynbótasýning-
ar á þessu ári beint í gagnagrunn-
inn. Strangar reglur eru um
skráningu á hrossum inn í World-
Feng og geta t.a.m. erlendir skrá-
setjarar ekki skráð folald nema
foreldra sé hægt að rekja beint
til íslands.
Verkefni framundan
Á árinu 2002 eru mörg spenn-
andi verkefni fyrirhuguð. I upp-
hafi ársins verður bætt við mynd-
um vegna litaverkefnis sem
styrkt var af Stofnverndarsjóði.
Það verður unnt að fletta upp
myndum samkvæmt litarnúmer-
um, þannig að með auðveldum
hætti er hægt að átta sig á hvaða
litanúmer er rétt fyrir hvert hross.
Annað verkefni er vegna rækt-
unarnafna en á þessu ári verður
opnað fyrir skráningu á ræktunar-
nöfnum í Feng. Þá geta hrossa-
ræktendur í þéttbýlinu skrásett
ræktunarnöfn samkvæmt ákveðn-
um reglum þar um. Ræktunar-
nöfn má nota í stað uppruna-
nafna, þar sem aðeins má nota
nafn á lögbýlum fyrir uppruna.
Þriðja verkefnið og umfangs-
mesta verður vegabréf hrossa, en
nú liggur fyrir lagabreyting um
að í stað upprunavottorða verði
gefin út vegabréf fyrir hross.
Þetta er í samræmi við reglur
Evrópusambandsins þar um og
hafa vegabréf með þessum hætti
verið gefin út í allnokkur ár í hel-
stu Evrópulöndum. Hrossarækt-
endur, sem hafa flutt út hross,
hafa fengið upprunavotturð á ís-
landi en síðan hafa kaupendur
hrossanna þurft að fá vegabréf í
því landi sem hrossið var flutt til.
Þannig skapast aukakostnaður
sem er komið í veg fyrir með
þeirri lagabreytingu sem liggur
fyrir. Mikill áhugi er á þessu máli
hjá aðildarlöndum FEIF en þeir
sjá lausn á þessu fyrir sig með
því að nýta eitt samræmt tölvuk-
erfí, þ.e. WorldFeng til útgáfu
þessara vegabréfa sem jafnframt
yrði þá miðlæg skráning á vega-
bréfum.
Annað stórt verkefni er al-
þjóðlegt kynbótamat en með
WorldFeng hefur verið byggður
upp fjölþjóðlegur gagnagrunnur
sem er forsenda þess að hægt sé
að reikna út slíkt mat. Á þessu
ári er ætlunin að breyta litarnúm-
erinu úr fjögurra stafa í sex stafa
númer en með því að breyta
númerinu í kerfinu þarf að flytja
gömlu númerin yfir á ný númer.
Upplýsingum um afkvæmahrys-
sur í áranna rás á einnig eftir að
bæta í gagnagrunn WorldFengs.
Þá eru uppi hugmyndir um að
búa til sérstakan sýningarpakka
vegna kynbótasýninga til að geta
með auðveldum og skýrum hætti
birt niðurstöður kynbótasýninga
á mótsstað, á skjávarpa eða á
tölvuskjá. Þarna yrðu um sjálf-
virkan sýningarpakka að ræða
sem væri sjálfvirkt í gangi með-
an á sýningu stendur og birti
efstu hross í hverjum flokki
o.s.frv.
Á árinu 2002 er einnig ætlunin
að bæta við í gagnagrunninn
myndabanka Bændasamtakanna
sem nú er að finna í Islandsfeng.
Þar er um að ræða rösklega 2000
ljósmyndir af þekktum hrossum.
Niðurlag
Staða WorldFengs verkefnisins
í dag er ágæt. Allir helstu áfan-
gar, sem lagt var upp með, hafa
náðst og mikilvægir áfangar eru
framundan til að reka á smiðs-
höggið. Nú þegar hafa níu lönd
gerst áskrifendur að kerfinu en
það eru Austurríki, Belgía, Bret-
land, Finnland, Holland, Luxem-
burg, Noregur, Sviss og Svíþjóð.
Þarna eru stærstu löndin Svíþjóð,
Holland og Noregur. Á næsta ári
stefna Danmörk og Þýskaland að
því að gerast áskrifendur.
Á janúar á þessu ári verður
haldinn fundur með Þjóðverjum
þar sem rætt verður um mögu-
leika á að flytja gögn úr gagna-
grunni IPZV inn í WorldFeng og
með hvaða hætti megi eiga sam-
starf um gagnagrunna þessara
ríkja.
í upphafi árs 2002 eru um 150
áskrifendur komnir með skoð-
andaaðgang að WorldFeng.
Meirihlutinn eru íslenskir áskrif-
endur, eða rúmlega 100. Vonandi
fjölgar áskrifendum verulega
þegar gögn hafa verið t.d. lesin
inn frá Svíþjóð, en Svíar hafa
samið við Bændasamtökin um
innlestur á öllum sænska gagna-
grunninum en töluverð vinna er í
að umnúmera hross í þeim
grunni. Með aukinni skráningu
aðildarlanda FEIF eykst notagil-
di WorldFengs fyrir hrossarækt-
endur um allan heim. Hingað til
hafa Svisslendingar verið dug-
legastir við innskráningu á
hrossum en þeir hafa skráð yfir
400 hross í grunninn, en fast á
hæla þeim koma Finnar með um
300 hross.
Á heildina litið má segja að
WorldFengs verkefnið standi vel
í upphafi þessa árs. Miklir vax-
tarmöguleikar eru fyrir hendi og
ljóst að WorldFengur hefur fest
sig í sessi sem eini viðurkenndri
gagnagrunnur um íslenska hest-
inn í heiminum. Það styrkir
stöðu Islands sem upprunaland
íslenska hestsins.
I 54-Freyr 1/2002