Skátablaðið - 01.04.1947, Qupperneq 9
SKATABLAÐIÐ
Reykjavík,
april—mai 1947,
7. og 4. tbl., XIII. árg.
ÚTGEFANDI: BANDALAG ÍSLENZKRA SKÁTA
X yrEÐ hœkkandi sól hlýnar öllurn utn hjartarætur, eldri sern yngri. Hauður
og haf breyta svip, lif og fjör færist um lög og láð. Loftin enduróma af
fögrum fuglasöng, og jurtir og blórn klæða jörðina i marglitan, lilýlegan sumar-
skrúða.
Hvílík breyting, þegar allt er í sumarskrúði. En þessi breyting nær einnig
til okkar, mannanna barna. Svefndrungi skammdegishúmsins hverfur, við verð-
um árrisulli, útþráin vex, við þráum sól og heiðan himin, fjallaloft og gróð-
urilm.
Og áður en við vitum af, stöndum við ferðbúin með nesti og nýja skó, bak-
poka á herðum og staf í hönd. Það er útilífið, sem kallar, útilegan, útilegan
með öræfaferðum, fjalladýrð og varðeldum, — já, varðeldum og tjaldstað á
bökkum seitlandi lækjarsprænu.
ísland er fagurt, og fá lönd munu hafa svo mörg örnefni sem það, örnefni,
sem við eru tengdar glöggar og lifandi sagnir úr sögu þjóðarinnar um aldaraðir.
Ef til vill hafa örnefnin átt sinn mikla þátt i að varðveita þessar sagnir, sem
okkur eru svo kærar.
Örnefnin eru sterkur þáttur í þjóðlífi okkar. Við finnum það bezt, þegar
við heimsœkjum átthagana eftir nokkurra ára fjarveru. Hólarnir, holtin, dal-
verpin, steinarnir, eru eins og gamlir vinir, lifandi verur, höfuðpersónurnar i
þeim munnmœlum, sem við örnefnið eru tengdar.
Við megum ekki glata örnefnunum. Við megum ekki láta þau falla i gleymsku
og dá.
Ef til vill átt þú, sem þessar línur lest, langt sumarferðalag i vændum, eða
máske stutt, það skiptir litlu máli. Aðalatriðið er það, að þú njótir þess og
hafir um leið not af þvi. En hvort tveggja er jafnnauðsynlegt. Ég skal nú gefa
þér nokkrar bendingar um, hvernig þú getur haft gagn af ferðalagi þinu, því
að hafir þú það, hlýturðu einnig að njóta þess. Hér eru þessar bendingar.
Aflaðu þér fyrirfram sem beztrar þekkingar á því svæði, sem þú ætlar að
ferðast um. Framhald á næstu bls.