Skátablaðið


Skátablaðið - 01.08.1947, Page 9

Skátablaðið - 01.08.1947, Page 9
um o Mínnináajt’oi'ð PÉTUR EGGERTSSON Pétur Eggertsson var fæddur í Reykjavík 11. apríl 1927. Hann var sonur hjónanna Halldóru Jónsdóttur og Eggerts Jóhannes- sonar, járnsmiðs. Á unga aldri gekk hann í skátahreyfing- una og upp frá jrví helgaði hann skátahng- sjóninni krafta sína. Hann var í blóðgjaf- arsveit skáta; hann tók þátt í dauðaleitum með skátum og hann varði frístundum sin- um til að þjálfa sig til að geta veitt sam- borgurum sínum aðstoð, ef á þyrfti að halda. Hann var einn í hópi þeirra ungu manna í þessu þjóðfélagi, sem hafa strengt þess heit að vera ávallt viðbúinir. Okkur félögum hans var tilkynnt sú hryggilcga staðreynd að kvöldi mánudags- ins 15. þ. m., að Pétur hefði látizt af slys- förum. Okkur setti hljóða; við áttum bágt með að skilja, hvers vegna hann Pétur skykli vera kallaður burt úr vinahópnum í blóma lífsins, aðeins tuttugu ára að aldri. En, hann Pétur Eggertsson er farinn heim. Nú syngur hann ekki oftar með okk- ur við varðeldana. Nú vekur hann okkur ekki lengur á morgnana í útilegunum með lúðurhljómi. Nú eigum við ekki lengur kost á viðkynningunni við þennan hægláta, glað- væra og trausta vin. Já, sannarlega höfum við félagarnir hans misst mikið. Þess vegna skiljum við svo vel söknuð móður hans og systkina. Og við sendum móðir hans, frú Halldóru Jónsdóttur, okk- ar innilegustu samúðarkveðjur, þar sem hún á fáum árum hefur orðið að sjá að baki eiginmanni sínum, dóttur sinni, og nú þessum hugljúfa syni. En minningarnar eru okkur öllum hugg- un á skilnaðarstundinni. Á meðan okkur endist líf, munum við geyma hinar björtu minningar frá samverustundunum því allar þær minningar, sem við hann eru tengdar, eru aðeins minningar um birtu og yl, þar sem skuggi fellur hvergi á. Kæri vinur, við göngum með þér sein- asta spölinn. Við munum reyna eftir fremsta megni að vera hughraust og bera höfuðið hátt, því slík voru síðustu skila- boð jrín til móður Jrinnar. Þú hefur nú farið á undan okkur til bjartari landa, og við vitum, að þegar á okkur verður kallað, þá munt ])ú verða þar fyrir og taka á móti okkur með þínu bjarta brosi og hlýja hand- taki. Vertu sæll. Guð blessi minningu ])ína. P. H. P. SKATABLAÐIÐ 83

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.