Skátablaðið - 01.08.1947, Blaðsíða 29
Rigning og ofsahiti. — Landsmótið ncesta sumar. — Heitið á skáld.
— Úlfljótsvatn er dásamlegur staður. — Basl er búskapur. — Kýr og
kindur. — Úlfljótsvatn, höfuðból. — Búningarnir enn. — Kvenskát-
arnir rjúfa þögnina. — Gott vetrarstarf og fleiri bréf.
JÆJA, SYSTKINI GÓÐ! Þá er þetta sumar
liðið í allri sinni dýrð. Margir hafa orðið fyrir
sárum vonbrigðum með tíðarfarið, og allt skáta-
starfið liefir að sjálfsögðu orðið lítið vegna dutl-
unga veðráttunnar. En hvað um það. Aðrir hafa
sögu að segja. A ég þar við hina íslenzku Jam-
boreefara. Orðið rigning er vst ekki að finna í
þeirra dagbókum. Ég býst við, að þeir hafi
fengið sig fullsadda á stundum af góða veðrinu
a. m. k. meðan þeir dvöldu í Frakklandi. Það
fór ekki mikið fyrir þeim drengjunum svona um
miðjan daginn, þar sem þeir lágu í forsælu
trjánna og svitinn bogaði af bringu og baki. Þá
voru menn hljóðir. Hitinn var ægilegur oft á
tíðum og það mátti heita að við sæjum ekki
rigningardropa fyrr en við lögðum af stað heim
frá Englandi nú um daginn. Annars munu
Jamboree-fararnir leysa frá sínum skjóðum í
jólablaði Skátablaðsins. Er því bezt að hætta
þessu rabbi og snúa sér að framtíðinni og þeim
verkefnum, sem bíða okkar.
NÚ Á AÐ HALDA herlegt mót að Þingvöll-
urn við Oxará næsta sumar. Verður mótið sam-
eiginlegt fyrir drengi og stúlkur. Er búist við
mikilli þátttöku víðs vegar að af landinu. Þá
er von á skátum frá útlöndum. Þetta verður því
eins konar Jamboree. Má nærri geta hvort marg-
an fýsi ekki að sækja þetta mót, sem áreiðanlega
verður stærsta og fjölmennasta landsmót, sem
haldið hefir verið hér.á landi. Enda er nú þegar
vaknaður mikill áhugi fyrir því. Landsmóts-
nefndin vinnur af kappi. Hún hefir þegar
brugðið sér til þingvalla og valið mótstaðinn.
Hygg ég, að sá staður sé vel valinn. Nefndar-
SKATABLAÐIÐ
innar býður mikið og erfitt starf. Þess vegna
væri æskilegt að sem flestir skátar komi með til-
lögur og bendingar varðandi landsmótið. Eng-
inn getur látið sér í léttu rúmi liggja hvernig
þetta mót fer úr hendi. Allir verða að leggja
hönd á plóginn. Þá fer allt vel. Leggið hönd
undir kinn, hugsið og skrifið niður. Skátablað-
inu er mjög kærkomið að koma á framfæri
áhugaefnum vkkar í sambandi við jretta mikla
og merkilega mót.
EITT VANTAR OKKUR. Ja, það verður
víst margt sem okkur vantar. En ég á við nýja
mótssöngva. Okkur vantar fallega og góða skáta-
söngva til þess að syngja þessa daga. Ljóð og
lög. Söngurinn, hann er vort mál. Hér með er
heitið á öll ljóð- og tónskáld skátahreyfingar-
innar að yrkja nú söngva fyrir skátaæskuna. Nóg
eru yrkisefnin. Ævintýri skátalífsins, hinn forn-
frægi og sérkennilegi sögustaður, Þingvellir
og margt fleira.
Fyrirkomulag mótsins og framkvæmd fáið þið
að vita svo fljótt sem auðið er. Einu ætla ég að
skjóta að ykkur enn. Farið að hugsa um hliðin
ykkar. Hfiðin vekja hvarvetna mikla athygfí
og skátar gera miklar kröfur til þeirra. Þau eru
skoðuð í krók og kring og metin. Leggist nú
undir feld og hugsið um þetta allt saman. Ég
verð á hnotskógum eftir fregnum af undirbún-
ingi mótsins og læt ykkur heyra hvað gengur. Má
ekki eyða meiru rúmi núna. Hittumst heil að
Þingvöllum ncesta sumar.
HAFIÐ ÞIÐ ANNARS gert ykkur ljóst hve
fallegt og dásamlegt er austur að Úlfljótsvatni.
103
L