Skátablaðið - 01.08.1947, Blaðsíða 25
var sæmd merki mótsins úr gulli. Hún
dvaldi lengi meðal okkar, litaðist um á
svæðinu, heimsótti nokkrar þjóðir. Enn-
fremur borðaði hún ís með einni stúlku
frá hverri þjóð, þeirri yngstu. Várð því
Soffa sú útvalda úr okkar hóp.
Síðasti dagur mótsins var dagur útlend-
inganna. Komu þá allar þjóðirnar með eitt-
hvað til skemmtunar og landkynningar.
Við dönsuðum víkivaka. Sigríður Skafta-
dóttir skýrði kvæði Jónasar Hallgrímsson-
ar „Nú andar suðrið“ og las það síðan á
íslenzku. Að lokum sungum við þjóðsöng-
inn. Fékk hver þjóð aðeins fimm mínútur.
Um kvöldið var mótinu svo slitið og fán-
arnir dregnir niður í síðasta sinn. Við gáf-
um K. F. U. K. skátasambandinu íslenzka
fánann, sem við höfðum flaggað með á mót-
inu. Þá gáfum við mótstjóranum, Nelly
Buch Larsen, fánastöng og borgarstjóran-
um okkar gáfum við gæruskinn. Hafði Stína
skrautritáð þakklætisorð okkar á það en
Við skrifað nöfn okkar undir.
Föstudaginn 1. ágúst var haldið af stað
til Kaupmannahafnar með lest kl. 7,55 f. h.
Við vöknuðum kl. 5 því eftir var að taka
niður tjöldin og ganga frá tjaldsvæðinu.
Ferðin gekk vel þar eð aukalest og ferja
var fyrir skátastúlkurnar. I Höfn skildu
leiðir okkar, íslenzku skátastúlknanna. Við
hittumst þó nokkrum sinnum þessa 12
daga, sem við dvöldum þar. Flestar okkar
dvöldu hjá dönskum skátasystrum okkar.
Tóku þær frábærilega vel á móti okkur.
Vonandi fáum við að sjá þær hér á okkar
stóra landsmóti næsta sumar að Þingvöll-
um. Fáum við þá tækifæri til þess að endur-
gjalda þeim, hina miklu gestrisni og alúð,
sem þær sýndu okkur. En þær hafa mikinn
áhuga fyrir að heimsækja okkur á lands-
mótið að sumri.
Móh.asa£n
ÚMliótsvatmsslkólanS',
I ráði er að auka og efla bókasafn skáta-
skólans að Úlfljótsvatni nú á næstunni.
Verður reynt að safna saman bókum meðal
skáta og eru þeir, sem hug hefðu á að
gefa bækur til skólans, beðnir um að koma
bókapökkunum á skrifstofu B. í. S. Allir
þeir, sem komið hafa að Úlfljótsvatni eða
hafa dvalið þar vita hve gott og gaman hef-
ir verið að grípa til bókar og lesa þegar
tími hefir gefist til. En bókasafn skólans
er lítið að vöxtum enda lítið aukist hin
síðari ár. Nú er hins vegar vaknaður áhugi
fyrir því að bæta úr þessu. Er þess að
vænta að allir þeir skátar, sem dvalið hafa
á Úlfljótsvatni hugsi til skólans, ef þeir
hafa í fórum sínum góðar unglingabækur,
sem þeir eru vaxnir upp úr eða vildu færa
skólanum að gjöf. Ein er hver ein. Safnast
þegar saman kemur. Skátar! Athugið þetta
og komið bókunum á skrifstofu B. í. S.
í skátaheimilinu.
SKÁTABLAÐI-D
99