Skátablaðið - 01.08.1947, Blaðsíða 14
ASTRID HALD FREDERIKSEN:
Hamíegjan lbrosír víð Sysser
(Ævintýri skátastúlknanna heitir bók, sem
Ulfljótur gefur út nú fyrir jólin. Hér birtist
kafli úr þeirri bók. Aðalbjörg Sigurðardóttir
hefir þýtt bókina.)
Maður nokkur gekk hratt eftir götunni.
Allt í einu missd hann dálítinn böggul, en
hélt leiðar sinnar án þess að taka eftir því.
í sama bili bar Sysser að með skólatösk-
una sína undir handleggnum. Hún sá bögg-
ulinn á götunni, tók hann upp og hljóp á
eftir manninum.
„Góðan daginn, afsakið, þér misstuð
þetta víst.“
„Hamingjan góða, ég geng víst í svefni,
og þetta sem er gullarmbandið konunnar
minnar, það var verið að gera við það. Ég
þakka kærlega fyrir,“ maðurinn ætlaði að
halda áfram, en leit um leið með athygli á
telpuna, sem stóð andspænis honum.
„Nei,“ hrópaði hann undrandi, „þetta
er þá Sysser, vinkona mín. Heyrðu nú til,
Þó stóð félagið fyrir Mývatnsmótinu árið
1946.
Skátafélagsskapurinn á Akureyri hefur
átt sín blóma- og hnignunarskeið, eins og
átt hefur sér stað um önnur skátafélög hér
á landi. En frá því að sameining drengja-
skátafélaganna átti sér stað, hefur starfsemi
skátafélaganna á Akureyri verið í stöðug-
um vexti. Leitast hefur verið við að beina
þróuninni upp á við þ. e. að ala unga fólkið
upp í hinum sanna skátaanda.
þetta verð ég að borga þér. Við skulum
koma hérna inn í veitingastofuna og fá
okkur kaffibolla, þó að ég hafi nú reyndar
ekki rnikinn tíma afgangs."
Þessu góða boði gat Sysser ekki neitað.
Þau komu sér fyrir í rólegu horni á veit-
ingastofunni. Sysser fór strax að masa og
herra Berg hlustaði á hana ánægjulegur
á svip.
„Sjáðu nú til,“ sagði Berg, þegar þau
höfðu drukkið kaffið. „Ég hefi verið að
hugsa urn þetta, sem þú varst að tala um
um daginn. Er það komið í kring?“
„Já, ég held nú það. Og mikið varð
Vibsen sæl.“
„Og önnur lítil stúlka allt annað en sæl,“
bætti Berg við.
„Nei, nei,“ flýtti Sysser sér að segja.
„Vitleysa — bull, segi ég bara. Heldurðu
að ég geti ekki lesið það úr augunum þín-
um, að þig dauðlangar með. Þú getur ekki
skrökvað að mér. Þú talaðir auðvitað vel
fyrir þínu máli, en eitthvert vit verður að
vera í hlutunum. — Berg pabbi skal borga
fyrir þig fjórtán daga dvöl í skátabúðum á
fegurstu eyjunni,sem til er í Danmörku. Það
eru fundarlaunin fyrir armbandið," sagði
hann og barði i borðið.
Sysser hrökk við, bæði við hávaðann af
högginu og af því að hún varð svo hissa.
„Ég gat nú ekki annað en séð böggulinn,
þegar hann datt við fæturna á mér,“ sagði
hún og færðist undan.
„Nú verð ég reiður við þig frk. Sysser, ef
þú tekur ekki boði mínu,“ Berg reyndi að
88
SKÁTABLAÐIÐ