Skátablaðið - 01.08.1947, Blaðsíða 21
b. í flokksskápnum:
1. Bönd, minnst 6—8 stk.
2. Æfingabindi (flónels eða lérefts)
ca. 4—5 stk.
3. Landabréf og áttaviti.
4. Pappír og blýantur.
5. Semaforflögg og morselampi.
6. Litið safn skátabóka og blaða.
Þetta er nú alllangur listi, en samt er ég
viss um, að eftir nokkra fundi þarf meira,
því að oft gleymist eitthvað. En það er góð
regla að festa miða innan á skáphurðina,
sem á er skrifað allt, sem á að vera þar.
Þið spyrjið nú ef til vill, hvar þið eigið
að fá þetta allt. Svarið er: „Þið eigið að búa
þetta til sjálf. Þetta er ykkar herbergi."
Svo koma hérna nokkur atriði, leikir og
keppnir, sem þið getið notað. Munið að
skátastarfið á að vera eins og leikur.
A flalílcsfuníltim.
Þið finnið nóg verkefni fyrir flokksfund-
ina í hinni nýju bók Hallgríms Sigurðs-
sonar, Skátastörf.
Byrjunarathöfn.
A sveitarftintlum.
a. Leikur: Rífa fisk.
Fyrst fer fram keppni innan hvers
flokks. — Aliir fá miða (úr dagbl.) ca.
10 cm á hvern veg. — Þegar flautað er
eiga allir að reyna að rífa út úr miðan-
um, svo að það, sem eftir verður, líkist
fiski. Tími er ákveðinn ca. 1 mín. —
Síðan er dæmt um það hver beztan hefur
rifið fiskinn.
Þeir sem vinna, keppa svo fyrir flokka
sína þannig. „Fiskarnir“ eru allir lagðir
á gólfið í beina línu á öðrum enda her-
bregisins og hver skáti á svo að blása
sínurn fiski yfir að veggnum hinu megin.
Sá vinnur, sem er fyrstur.
b. Snarrceði.
Fáið ykkur band og myndið á það
auga eins og myndin sýnir. Tveir skát-
ar halda í sinn hvorn enda bandsins.
Bolti er hafður á kassa eða borði rétt
fyrir framan augað.
Leikurinn er í því fólginn að hand-
sama boltann áður en skátunum tekst
að herða svo að hendinni, að hún verði
föst í auganu.
Skátinn er úr leik, ef hann kemur við
boltann en tekst ekki að ná honum.
Skátinn fær einn vinning fyrir að ná
boltanum og má hann þá reyna aftur.
c. Skemmtiatriði.
Kúrekar og Indíánar.
Allir geta verið þátttakendur í þess-
um leik. Skátunum er skipt í sex flokka,
kúreka, Indíána, konur, hesta, byssur,
boga og örvar.
Einn skátinn segir eftirfarandi sögu:
95
SKÁTABLAÐIÐ