Skátablaðið - 01.08.1947, Blaðsíða 37
eldum, eða öðru því, sem þar verður um
að vera.
★
Þá hræðslu, sem fram hefir komið, að
\egna þessarar svokölluðu sameiningar, geti
svo farið, að kvenskátarnir hvorki vilji né
geti staðið á eigin fótum, tel ég með öllu
ástæðulausa. Mér finnst næsta ólíklegt, að
svo gott félagslegt veganesti, sem skátunum
er gefið í hverju góðu skátafélagi, geti ckki
ska]rað þann persónuleika, sem þarf til þess
að vinna að framgangi félags síns, hvort
heldur á í hlut piltur eða stúlka.
Ef á hinn bóginn annað hvort kynið
ætti að ráða öllum málum félagsskaparins,
hver getur þá sagt að óreyndu máli, hvort
sterkara yrði í þeirri valdabaráttu? Það,
sem rnáli skiptir, er ekki hver stjórnar í
hverju einstöku atriði, heldur skátaandinn,
sem ræður framkvæmdum.
15. okt. 1947.
GÓF.
„SPLÆS“
Foringinn er
að sýna skát-
anum, hvernig
á að „splæsa“
saman tó.
1 1 1
SKATABLAÐIÐ