Skátablaðið


Skátablaðið - 01.08.1947, Síða 16

Skátablaðið - 01.08.1947, Síða 16
„Já.“ „Það er lítil stúlka hér frammi, sem vill tala við skrifsto£ustjórann,“ sagði ein skrif- stofustúlkan. „Á ég að segja, að þér séuð í önnum?" „Nei, vissulega ekki. Ég held þér séuð ekki nteð öllum mjalla. Nú hefi ég farið hamförum til þess að ná tali af þessari litlu stúlku, og svo komið Jtér og ætlið að eyði- leggja allt ævintýrið fyrir mér. Komið nú bara strax með hana hingað,“ sagði Berg hlæjandi. Þegar Bodil svo kom inn, létt og snör í hreyfingum, varð skrifstofustjóranum að hugsa: Snotur, eiginlega blátt áfram falleg stúlka með brún augu, sem bæði geta verið blíðleg og líka full af mótþróa. „Frk. Bodil Kéldsen, geri ég ráð fyrir, ég er Berg skrifstofustjóri,“ sagði herra Berg vingjarnlega og bauð henni sæti í indælum, mjúkum hægindastól. „Sysser hefir sagt mér —, þið eruð vinkonur, er ekki svo?“ bætti hann við og deplaði augunum hálflirekkja- lega. Það var sem augu Bodilar fylltust mót- þróa. Hvað átti þetta að þýða? Það var víst bezt að gæta sín. „Ef við erum ekki vinkonur, þá er það að minnsta kosti ekki mér að kenna, ég vildi gjarnan vera vinkona Sysser, en hún velur sér ekki vini utan skátafélagsins.“ Berg átti erfitt með að vera alvarlegur. „En hvernig væri Jrað þá að verða skáti, eitthvað verður maður að leggja á sig, vílji maður eignast vin.“ „Puh, ha, nei, ég Jjakka, haldið þér — eða skrifstofustjórinn.“ „Þú skalt ekki kæra Jng um nein hátíðleg ávörp, kallaðu mig bara Berg pabba, eins og Sysser gerir.“ „Haldið þér að ég ætli að fara að iðka einhverjar dyggðir? Maður má ekkert, þeg- ar maður er skáti.“ „Ég mundi nú heldur orða það svona: Maður fær að gera svo margt, sem aðrar telpur fá ekki.“ „Það eru alls konar lög, sem þarf að hakla.“ „Lögin sín búa skátarnir sjálfir til, og lofa af frjálsum vilja að hlýða þeim. Hugs- aðu svo bara um það dásamlega útilíf, sem þeir lifa. Það liggur satt að segja við að ég öfundi Lottu af því að eiga að fara í skáta- búðir. Sjálfur gæti ég vel hugsað mér að fleygja frá mér síðu buxunum og íklæðast stuttbuxum og háum sokkum, setja föggur mínar í bakpoka og fara með, en Jjví mið- ur er |>aö ekki hægt. Ég verð að gæta virð- ingar minnar,“ og Berg hló góðlátlega. Bodil komst blátt áfram í gott skap við að heyra, hvað Berg gat hlegið innilega. Óbeitin, sem hún hafði haft á því að fara í þessa heimsókn var alveg horfin. Hugsa sér, hvað hann gat verið notalegur að tala við, og svo skildi hann að einhverju leyti hvað hrifið gat huga ungra stúlkna. Hana langaði mest til að stökkva upp um hálsinn á þessum ókunna manni, en sat þó á sér. Ungar, vel upp aldar stúlkur hög- uðu sér ekki þannig. Síminn hringdi. „Halló, já, gætirðu hringt svolítið seinna. — — Nei, nei, ekki rétt í bili.“ Bodil hafði nú fengið tíma til að hugsa um, hverju hún ætti að svara málaleitan Bergs. Það var ekki hægt að neita því, að það var góð hugmynd að verða skáti, ef hún gat með því móti áunnið sér vináttu Sysser, eða ef það gæti orðið til þess að Sysser færi að þykja ofurlítið vænt um hana. Sysser gat svo sem verið merkileg með sig og yppt öxlum, þegar Bodil gekk eftir henni. Sysser átti nóga félaga, en Bodil ekki einn einasta. I raun réttri var hún ekkert á móti skáta- félagsskapnum; hún játaði fyrir sjálfri sér 90 SKATABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.