Skátablaðið


Skátablaðið - 01.08.1947, Page 32

Skátablaðið - 01.08.1947, Page 32
K VENSKÁ TASKÓLINN. Þann 22. ágúst s. 1. lauk sumarskóla kvenskáa að Úlfljótsvatni. Dvöldu þar um 40 skátar og ljósálfar í lengri eða skemmri tíma. Voru það aðallega stúlkur fr'á Revkjavík að tveim undan- skyldum. Má segja að starfið hafi gengið vel, þó útistarfsemi og ferðalög hafi ekki orðið sem skyldi siikum óhagstæðrar veðráttu. Varð því að haga seglum eftir vindi og binda sig aðallega við innanhússstarfsemi og æfa undir ýmis próf og var það gert af kappi, enda varð árangurinn góður, þar sem flestir nemendur sýndu einstak- ann áhuga. Árangur í prófunum varð sem hér segir: Af 35 skátum tóku 6 nýliðapróf, 13 luku 2. fl. prófi, 90 sérpróf voru tekin, þar á meðal „Hjálp í viðlögum“, „heimahjúkrun", „matreiðsla"; „útilega", „vinnukona" o. fl. 7 skátar fóru í 50 km göngu, 7 gengu 60 km og 8 70 km. 10 skátastúlkur urðu skjaldmeyjar. Ljósálfar voru 9. Þar tóku 2 ljósálfapróf, 8 tóku 1. stjörnu, 3 2. stjörnu og 22 sérpróf voru tekin. Einn ljósálfur (Helga Haraldsdóttir, 10 ára) gekk 70 km með skátunum og tók sundpróf skáta. Eins og áður er sagt var óhagstæð veðrátta allann timann, að undanskilinni einni viku, það var þó farið í eina smáútilegu og eins fóru skátastúlkurnar og 1 ljósálfur gangandi yfir í Hveragerði ásamt drengjunum og tóku nokkrar stúlkur sérpróf í sundi í lauginni þar. DRENG JASKÓLINN. Drcngjadeild skátaskólans á Úlfljótsvatni tók til starfa 8. júní í sumar. Drengir á skólanum voru þá 24, 6 skátar og 18 ylfingar. Flestir urðu drengirnir 27 en fæstir 23. Var þeim skipt í fjóra flokka, þrjá fyrir ylfinga og einn fyrir skáta. Drengirnir sváfu í fjórum stórum tjöld- um, einn flokkur í hverju. Skólastjóri var stud. teol. Björgvin Magnússon, deildarforingi í skáta- félaginu Völsungar, en kennarar voru þeir Þor- valdur Þorvaldsson úr skátafél. Hraunbúar og Ragnar Jón Einarsson úr skátafélagi Reykjavík- ur. Ráðskonur voru Sigmunda Elannesdóttir og Margrét Kristjánsdóttir úr Kvenskátafélagi Reykjavikur. Á skólanum tóku fjórir skátar 2. fl. próf, einn varð skjaldsveinn, en alls tóku skát- arnir 20 sérpróf. Þrír ylfingar tóku sárfætlingspróf, fjórir fyrstu stjörnu, en alls voru um 80 ylfingasérpróf tek- in. — Heilsufarið var sæmilegt, nokkur mislinga- tilfelli fyrst framan af. Veðráttan hamlaði nokk- uð starfseminni og olli því, að ýmis áform fórust fyrir, en þó gekk starfsemin sæmilega. Helztu framkvæmdir má telja þær, að smíðaður var pallur við suðurenda skálans, til mikils prýðis fyrir skólahúsið. Veiði í vatninu var óvenjulega treg. Þann 21. ágúst var skólanum slitið og verðlaun afhent. Flokkaverðlaun hlaut Máfa- flokkurinn, einn af ylfingaflokkunum, og fékk liver maður í flokknum skrautritað skjal. Ein- staklingsverðlaun hlaut Valgeir Gestsson, vand- aðan vökvaáttavita. Einnig var öllum flokksfor- ingjunum afhent skjal. Daginn eftir, þann 22. ágúst, fóru svo allir heim til sín. FORING JASKÓLINN. Dagana 14.—21. september s. 1. voru haldin sveitar- og flokksforingjanámskeið að Úlfljóts- vatni. Námskeið þessi sóttu 30 skátar frá þess- um stöðum: Reykjavík, Hafnarfirði, ísafirði, Sauðárkrók, Siglufirði, Akureyri, Húsavík, Nes- kaupstað og Eskifirði. Tólf nemendur voru á sveitarforingjanám- 106 SKATABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.