Skátablaðið


Skátablaðið - 01.08.1947, Qupperneq 34

Skátablaðið - 01.08.1947, Qupperneq 34
erindi sín. Utanáskrift er Skrifstofa B. í. S. skátaheimilinu við Hringbraut, pósthólf 831, Reykjavík. Þá eru allir skátar utan af landi, sem eru á ferð í Reykjavík, sérstaklega beðnir að koma við á skrifstofunni. ERINDREKI B. í. S. Aðalsteinn Júlíusson, sem að undanförnu hefir verið erindreki B. I. S. hefir horfið að verkfræðinámi við Háskóla íslands. Hætti hann því störfum fyrir B. í. S. um mánaðarmótin sept.—okt. s. 1. Skátar um land allt þakka Aðal- steini unnin störf í þágu hreyfingarinnar og óska honum góðs frama á námsbrautinni. LANDSMÓTIÐ. Bandalag íslenzkra skáta ákvað í sumar að fara þess á leit við eftirtalin fimm skátafélög að standa fyrir og sjá um landsmót að Þing- völlum næsta sumar: Skátafélag Reykjavíkur, Kvenskátafélag Reykjavíkur, Skátafélagið Völsungar, Skátafé- lagið Heiðabúar og Skátafélagið Hraunbúar. Félögin hafa nú tilnefnt sinn fulltrúann hvert í nefnd, sem á að starfa að undirbúningi mótsins. Landsmótsnefndin er þannig skipuð: Aðalsteinn Júlíusson frá B. í. S. Sigurður Agústsson frá B. I. S. Pétur Maack Jónsson frá Skátafélagi Reykja- víkur. Soffa Stefánsdóttir frá Kvenskátafélagi Reykjavíkur. Hallgrimur Sigurðsson frá Völsungum. Helgi S. Jónsson frá Heiðabúum, Keflavík. Þorvaldur Þorvaldsson frá Hraunbúum, Hafnarfirði. Auk áðurnefndra er framkvæmastjóri B. í. S., Vilbergur Júlíusson, einnig í nefndinni og sér um ýmsar framkvæmdir fyrir hana. Landsmótsnefndin heldur fundi vikulega. Hún hefir þegar haldið nokkra fundi og mun bráðlega skila áliti til stjórnar B. í. S. um stund, stað, fyrirkomulag og framkvæmd mótsins. ENNÞÁ NÝ SKÁTAFÉLÖG. Síðan fréttir voru seinast birtar í Skátablað- inu hafa enn bættst þrjú félög í B. í. S. Þau eru: Skátafélag Raufarhafnar, Raufarhöfn, Skátaflag Eskifjarðar, Eskifirði og Kvenskátafélagið Valkyrja, ísafirði. Félögin á Raufarhöfn og Eskifirði eru bæði nýstofnuð samfélög drengja og stúlkna. A báð- um stöðum virðist vera rikjandi áhugi fyrir skátamálum. Aðalhvatamaður stofnunar félags- ins á Raufarhöfn og núverandi félagsforingi þar er Leifur Eiríksson, kennari. Einn drengur þaðan sótti sveitarforingjaskólann í Glaumbæ í sumar. Stofnendurnir voru eingöngu drengir, en svo var ráð fyrir gert, að stúlkur yrðu teknar mjög bráðlega inn í félagið. A Eskifirði gengust þeir séra Þorgeir Jónsson, sóknarprestur og Skúli Þorsteinsson, skólastjóri fyrir stofnun félagsins. Þeir eru og félagsfor- ingjar. Félagið starfar enn aðeins i tveimur flokkum öðrum drengja en hinum stúlkna. Hug- myndin er að ala fyrst upp nokkurn hóp flokks- foringja áður en nýjir meðlimir væru teknir inn. Skátastúlkur hafa starfað um fjölda ára á Isafirði þótt ekki hafi þær fyrr verið teknar í Bandalagið. Um það leiti, er kvenskátasam- bandið var lagt niður, gengu flest hinna starf- andi kvenskátafélaga í landinu í B. í. S. Þá sendu þær og umsókn, en hún glataðist ein- liverra orsaka vegna og kom ekki i leitirnar fyrr en nú fyrir skömmu síðan. Félagsforingi kvenskátanna á ísafirði er María Gunnars- dóttir, kennari. JAMBOREE! Við aðalbraut: íslandssýningin auglýst. 108 SKATABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.