Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1962, Page 5

Skátablaðið - 01.07.1962, Page 5
Góðir skátar. Þegar þið fáið þetta blað í hendur, eru sjálfsagt mörg ykkar í sumarstarfi, full af áhuga á því að afla ykkur fjármuna, jafn- frarnt því, sem þið styrkið ykkur við holl útistörf. Eí' til vill hafa sum ykkar mögu- leika á því að leggja eitthvað af kaupinu til hliðar, svo að þið getið sjálf staðið straum af dvöl ykkar á landsmótinu, en þangað veit ég, að hugur ykkar margra stefnir. Við eigum líka að fjölmenna þang- að, svo að þetta afmælismót verði myndar- legt og fari vel fram. Þetta blað er helgað 50 ára skátastarfi á íslandi. Mig langar til þess að hvetja ykkur til að lesa vel þá þætti, sem ritstjór- inn hefur dregið fram frá liðnum tíma. Ef þið blaðið í gömlum skátablöðum verður ykkur ljóst, hve geysimikið starf fjölmarg- ir skátar hafa unnið, ungir og aldnir, kon- ur og karlar. í áratugi hafa sömu skátarnir oftsinnis verið í fararbroddi og ávallt verið viðbúnir að koma til hjálpar, þegar til þeirra hefur verið leitað. Starf þessara mörgu skáta, sem ég nefni ekki hér, er gott fordæmi fyrir ykkur, sem ung eruð. Kvöld eftir kvöld og ár eftir ár hafa þeir eytt flestum tómstundum sínum í þágu skáta- starfsins, og laun þeirra hafa eingöngu ver- ið fólgin í þeirri gleði og þeirri ánægju, sem starf með ungum drengjum og stúlk- ■um veitir, ánægjunni að sjá skátana vaxa og þroskast með íelagsstarfinu og tileinka sér þær dyggðir, sem felast í skátalögun- um. Þeir skátar, sem hafa verið svo lánsamir að njóta leiðsagnar slíkra manna, hafa orð- ið ánægðir í skátastarfinu og ávallt verið skátar, þótt störf þeirra hafi torveklað þeim að sinna félagsstörfum að staðaldri. Hins vegar megum við ekki daufheyrast þeinr röddum, sem við heyrum oft, að skáta- starfið gefi lítið í aðra hönd. Það er, því miður, allt of oft satt. Þótt ýmsar ytri að- stæður geti torveldað skátastarf, mun það oftar sök foringjanna, þegar illa gengur. En ætli árangur starfsins fari ekki oftast eftir því, hve mikið einstaklingurinn leggur í það frá sjálfum sér. Það uppsker enginn af því einu, sem aðrir sá. Hver og einn verð- ur sjálfur að leggja hönd á plóginn, hann verður að vinna, hann verður að gefa og fórna, ef hann á að uppskera þá gleði og ánægju, sem felst í árangursríku starfi, hvert sem starfið er. Á tímamótum eins og okkar er öllum hollt að skyggnast aftur í tímann, læra af þeim, sem á undan hafa farið og brautirn- ar rutt. En jafnframt þurfum við að horfa fram, fylgjast með þróun tímans, gæta þess vel, að við stöðnum ekki. Við skulum kapp- kosta að nýta tækifæri líðandi stundar, jafnframt því sem við búum okkur undir morgundaginn. Þá verðum við jafnan við- búin. Með skátakveðju. JÓNAS B. JÓNSSON SKÁTABLAÐID 31

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.