Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1962, Síða 50

Skátablaðið - 01.07.1962, Síða 50
Hjálpið okkur! EFTIRFARANDI grein barst okkur ný- lega frá Alþjóðaskrifstofu drengjaskáta með beiðni um, að Hún yrði birt í mál- gagni B.I.S. Skátablaðinu er ljúft að verða við þeirri beiðni, og jafnfrámt viljurn við hvetja alla skáta til að lesa hana með athygli og sinna þeim tilmæl- um, sem í henni eru borin fram, ef þeir liafa nokkur tök á því. ekkir þú ekki einhvern fatlaðan eða lamaðan dreng, sem líklegt væri að vildi verða skáti? Myndin, sem hér fylgir með, sýnir að hægt er að taka verulegan þátt í skátastarfi, þrátt fyrir alvarlega fötl- un. Það eru þegar starfandi fjöldamargar sveitir fatlaðra og lamaðra skáta víðsvegar um heiminn, samtals í 36 löndum. Samt sem áður er mjög mikið starf enn óunnið á þessum vettvangi, jafnt í einstökum lönd- um sem öllum heiminum. Ert þú viðbúinn að veita aðstoð þína? Hér kemur eitt af þeim mörgu atriðum, sem þú eða flokkurinn þinn getur gert: Safnið notuðum frímerkjum! Rífið þau út úr umslögunum utan af bréfum, sem þið eða fjölskyldur ykkar fáið. Rífið þau ekki frá pappírnum, og reynið að halda þeim hreinum og óskemmdum. Þegar þið eruð svo búnir að safna talsverðu magni, þá skul- uð þið setja þau í sterkt og gott umslag og senda þau til okkar. Utanáskriftin er: BOY SCOUTS WORLD BUREAU, 77 MET- CALFE STREET, OTTAWA 4, CAN- ADA. Fatlaður skáti. frá Austurríki. Ef þú getur fengið allan flokkinn þinn í lið með þér, þá er strax miklu meiri ár- angurs að vænta. Eða ef sveitaríoringinn ykkar fengist til að koma af stað keppni milli flokkanna um það, hver safnaði flest- um frímerkjum, þá væri það alveg dásam- legt. Ef til vill spyrjið þið núna, hvað Al- þjóðaskrifstofan geri við þessi frímerki. Svarið við því er, að við seljum þau frí- merkjasöfnurum og notum peningana, sem við fáum fyrir þau, til að auka og bæta skátastarf fatlaðra og lamaðra víðsvegar um heiminn. Og að lokum er eitt umhugsunarvert atriði. Það eru níu milljónir drengjaskáta í heiminum. Ef hver einstakur þeirra gefur eitt frímerki, þá sjáið þið, að það verður dálagleg upphæð, — en ef hver einstakur gæfi 10, eða 50 eða jafnvel 100 frímerki! 76 SKÁTABLAÐID

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.