Skátablaðið - 01.07.1962, Side 14
máð í henni. Flokksfundir voru haldnir á
kvöldin heima hjá flokksforingjunum, eða
þá úti einnig á kvöldin eða fyrri part dags
ef um frídaga var að ræða úr skólum. Fund-
ir voru mjög reglulega í hverri viku, en
aukafundir oft. Stundum komu þó ekki
nema fáir á æfingar, en venjulega var það
af því að veður hamlaði. Félags eða sveit-
arfundir voru haldnir á sunnudögum,
venjulega kl. 10, og var Jtá stundum farið í
hópferðir gangandi eða tvisvar á bát.
Á flokksæfingum æfðum við eftir Scout-
ing for Boys og The Scout, sem alltaf birti
meir og minna af leiðbeiningum um hvern-
ig ætti að haga flokksstarfinu. Flokkarnir
voru mjög sjálfstæðir og sveitarforingjarn-
ir skiptu sér lítið af starfseminni í flokkun-
um. Við höfðum ensk próf og sérprófs-
merki, en aðeins fá voru tekin. Við tókum
prófin afar hátíðlega og allt of þung.
Læknaskólanemendur kenndu hjálp í við-
lögum. Ég tók 2. fl. próf 24. ágúst 1913 og
einnig þeir Östlundsbræður. 1. flokkspróf
tók mér vitanlega aldrei neinn. Yfirleitt
fórum við allt of bókstaflega eftir þeim
leiðbeiningum, sem gefnar voru í Scouting
for Boys og The Scout, sem auðvitað staf-
aði af Jtví að við höfðum ekki það vit á
)anskir skátar leggja upp i ferðalag austur sveitir 11. águst 1913.
1 fararbroddi ríður rektor Hartvig Möller frá Hellerup.
2. fl. (1. sveitar) S.F.R. á Kópavogshálsi 1 f9 1913.
málunum, sem æskilegt hefði verið. Síðast
vorum við Axel Andrésson orðnir sveitar-
foringjar, en vorum vitanlega allt of ung-
ir og óreyndir og smásmugulegir. Það var
megingalli á félaginu frá byrjun, að við
höfðum engan bakhjall, eða íoreldraráð,
heldur var Jtetta tómur unglinga- og barna-
félagsskapur.
Á öllum æfingum mættum við í bún-
ingi, og var búningsskoðun einn fastur lið-
ur. Við gengum í stuttbuxum með ber hné,
hvernig sem veður viðraði, þrátt fyrir ráð-
leggingar foreldra og iðuleg lineykslunarorð
frá öðru fólki. Var þetta eins og hver önn-
ur vitleysa hjá okkur, við héldum að út af
búningnum mætti ekki breyta. Var okkur
oft ískalt. En í einhverri grein, að mig
minnir í Vísi, var í öðru sambandi talað
um „að skjálfa eins og skáti með ber hné“
og mun Jretta vera upphaf Jaess, að breytt
var búning, þó ekki yrði Jtað fyrr en löngu
síðar.
Ég virðist hafa verið í janúar á 8 fund-
urn, í febrúar á 5, í marz 6, apríl 10, maí
12, júní 11, júlí 11, ágúst 19, sept. 9, októ-
ber 9, nóvember 5, desember 15. Gefur
þetta nokkra hugmynd um störf okkar.
Sunnudaginn 26. janúar 1913 fóru 3 flokkar
gangandi til Hafnarfjarðar. 4. febrúar var
„meiri snjór en komið hefur á Jaessari öld.
40
SKÁTABLAÐIÐ