Skátablaðið - 01.07.1962, Síða 13
ist félagið í algerri upplausn og tókst
Ingvari, er hann kom hingað um sumarið,
ekki að blása lífi í það, svo talizt gæti.
Nokkrir okkar höfðum þó haldið saman
og hitzt öðru hvoru (Árni Ólafsson, Óli
Haukur, Guido Bernhöft, Östlundsbræður
og ég, og var ég flokksforinginn). Við lág-
um yfir að reyna að skilja eitthvað í
„Scouting for Boys“, nóg til þess að halda
áhuga okkar við og að sjá, að skátar ættu
að starfa öðru vísi en við höfðum gert.
7. júlí varð ég áskrifandi að „The Scout“,
sem var stórt vikublað, gefið út af aðal-
stöðvunum í London. — Ég átti tal við
Ingvar Ólafsson um félagsstarfsemina og
deildi á hana og mælti fyrir munn margra,
er ég sagði honum, að við vildum hafa ís-
lenzkt félag. En hann taldi öll vandkvæði
á jrví að við gætum stofnað það. Varð al-
drei mikill kunningsskapur með okkur eft-
ir þetta. En um haustið, eftir að hann var
farinn heim, var reynt að ná saman þeim,
sem vildu stofna sjálfstætt, íslenzkt skáta-
félag. Voru tveir eða þrír undirbúnings-
fundir haldnir og var þá skipulagið aðal-
ágreiningsatriðið. Vildu nokkrir að félagið
yrði hluti af K.F.U.M. og fengi síra Frið-
rik fyrir aðalforingja, en aðrir vildu ekki
hafa félagið í tengslum við neinn annan
félagsskap. Varð það sjónarmið ofan á.
Vorum við þó allir hlynntir síra Friðrik
persónulega og höfðum meir og minna
starfað í K.F.U.M.
Skátafélag Reykjavíkur var formlega
stofnað 2. nóv. 1912 á fundi í „Fjósinu"
á Menntaskólalóðinni. Var Sigurjón Pét-
ursson kjörinn fyrsti félagsforingi, en Helgi
Jónsson frá Brennu og Ben. G. Waage sveit-
arforingjar. Litu ungir strákar þá margir
upp til Sigurjóns, sakir íþróttaafreka hans
og glæsimennsku. En sumir þeirra, sem
vildu halda tengslum við K.F.U.M. vildu
ekki vera í félaginu og urðu síðar til þess,
að Væringjarnir voru stofnaðir af K.F.U.M.
Var stundum rígur nokkur milli Væringja
og Skáta fyrstu árin.
Ég starfaði með S.F.R. fram undir upp-
lestrarfrí í Menntaskólanum vorið 1914.
Eyddi ég allmiklum tíma í skátafélagsskap-
inn, of miklum myndi ég nú segja, með
því að stundum sat skólanámið frekar á
hakanum fyrir skátastarfinu, eða öfugt við
það sem vera skal. I sjálfu vorprófinu 1913
fórum við t. d. tvisvar í útilegu, og segir
um það í dagbók minni frá 1913: laugar-
daginn 21. júní: „Gekk upp í íslenzku kl.
2. Lögðum af stað í útilegu kl. 4 inn að Ell-
iðaám. Idar Östlund meidclist. Ég svaf 2y2
klst. alla nóttina, strákarnir létu svo illa.
Vaknaði kl. 6. Voru að gera hitt og þetta
fram yfir hádegi. Komum heim kl. 4.“ En
stærðfræðipróf var næsta dag. Þó ég væri
svo heppinn að ná sæmilegu prófi, þá er
þetta dæmi um það hvernig skátarnir eiga
einmitt ekki að starfa.
Húsnæði fyrir félagsfundi höfðum við í
hinu svonefnda „Fjósi“ Menntaskólans,
sem Pálmi yfirkennari lánaði okkur vin-
samlegast.
í dagbók, frá 1913, hef ég nýlega fundið
ýmislegt um starfsemi okkar, þó margt sé
Skátar úr S.F.R. við FJliðaár 24. apríl 1913.
SKÁTABLAÐIÐ
39