Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1962, Side 13

Skátablaðið - 01.07.1962, Side 13
ist félagið í algerri upplausn og tókst Ingvari, er hann kom hingað um sumarið, ekki að blása lífi í það, svo talizt gæti. Nokkrir okkar höfðum þó haldið saman og hitzt öðru hvoru (Árni Ólafsson, Óli Haukur, Guido Bernhöft, Östlundsbræður og ég, og var ég flokksforinginn). Við lág- um yfir að reyna að skilja eitthvað í „Scouting for Boys“, nóg til þess að halda áhuga okkar við og að sjá, að skátar ættu að starfa öðru vísi en við höfðum gert. 7. júlí varð ég áskrifandi að „The Scout“, sem var stórt vikublað, gefið út af aðal- stöðvunum í London. — Ég átti tal við Ingvar Ólafsson um félagsstarfsemina og deildi á hana og mælti fyrir munn margra, er ég sagði honum, að við vildum hafa ís- lenzkt félag. En hann taldi öll vandkvæði á jrví að við gætum stofnað það. Varð al- drei mikill kunningsskapur með okkur eft- ir þetta. En um haustið, eftir að hann var farinn heim, var reynt að ná saman þeim, sem vildu stofna sjálfstætt, íslenzkt skáta- félag. Voru tveir eða þrír undirbúnings- fundir haldnir og var þá skipulagið aðal- ágreiningsatriðið. Vildu nokkrir að félagið yrði hluti af K.F.U.M. og fengi síra Frið- rik fyrir aðalforingja, en aðrir vildu ekki hafa félagið í tengslum við neinn annan félagsskap. Varð það sjónarmið ofan á. Vorum við þó allir hlynntir síra Friðrik persónulega og höfðum meir og minna starfað í K.F.U.M. Skátafélag Reykjavíkur var formlega stofnað 2. nóv. 1912 á fundi í „Fjósinu" á Menntaskólalóðinni. Var Sigurjón Pét- ursson kjörinn fyrsti félagsforingi, en Helgi Jónsson frá Brennu og Ben. G. Waage sveit- arforingjar. Litu ungir strákar þá margir upp til Sigurjóns, sakir íþróttaafreka hans og glæsimennsku. En sumir þeirra, sem vildu halda tengslum við K.F.U.M. vildu ekki vera í félaginu og urðu síðar til þess, að Væringjarnir voru stofnaðir af K.F.U.M. Var stundum rígur nokkur milli Væringja og Skáta fyrstu árin. Ég starfaði með S.F.R. fram undir upp- lestrarfrí í Menntaskólanum vorið 1914. Eyddi ég allmiklum tíma í skátafélagsskap- inn, of miklum myndi ég nú segja, með því að stundum sat skólanámið frekar á hakanum fyrir skátastarfinu, eða öfugt við það sem vera skal. I sjálfu vorprófinu 1913 fórum við t. d. tvisvar í útilegu, og segir um það í dagbók minni frá 1913: laugar- daginn 21. júní: „Gekk upp í íslenzku kl. 2. Lögðum af stað í útilegu kl. 4 inn að Ell- iðaám. Idar Östlund meidclist. Ég svaf 2y2 klst. alla nóttina, strákarnir létu svo illa. Vaknaði kl. 6. Voru að gera hitt og þetta fram yfir hádegi. Komum heim kl. 4.“ En stærðfræðipróf var næsta dag. Þó ég væri svo heppinn að ná sæmilegu prófi, þá er þetta dæmi um það hvernig skátarnir eiga einmitt ekki að starfa. Húsnæði fyrir félagsfundi höfðum við í hinu svonefnda „Fjósi“ Menntaskólans, sem Pálmi yfirkennari lánaði okkur vin- samlegast. í dagbók, frá 1913, hef ég nýlega fundið ýmislegt um starfsemi okkar, þó margt sé Skátar úr S.F.R. við FJliðaár 24. apríl 1913. SKÁTABLAÐIÐ 39

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.