Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1962, Side 39

Skátablaðið - 01.07.1962, Side 39
þættum verkefnum úr skátastarfinu. Um þessa útilegu áttu þeir síðan að skila skrif- legri skýrslu, og eftir þeirn skýrslum verða síðan valdir úr fimm beztu kvenskátaflokk- arnir og fimm beztu drengjaskátailokkarn- ir, sem síðan komast í úrslit. Sjálf úrslita- keppnin fer svo fram á landsmótinu, þar sem þessir flokkar munu keppa til úrslita. Margvísleg verðlaun munu verða veitt í þessari keppni. Allir flokkar, sem ljúka keppninni, munu fá sérstaka viðurkenn- ingu, og þeir sem komast í úrslit fá allir sína viðurkenningu, bæði flokkarnir sem heild og einstaklingar innan þeirra. Þá munu og allir þeir flokkar, sem komast í úrslit, fá sérstakan klút með mótsmerkinu í, sem þeir mega bera á mótinu. Verður hann í áberandi lit og fylgir honum linút- ur, sérstaklega búinn til í þessum tilgangi. Þeir tveir flokkar kven- og drengjaskáta, sem síðan hljóta endanlegan sigur hvor í sínum hluta keppninnar, munu svo að sjálf- sögðu hljóta glæsileg verðlaun fyrir frammi- stöðuna. Verða endanleg úrslit keppninnar tilkynnt við síðasta varðeld landsmótsins, og mun skátahöfðingi þá afhenda hinum sigur- sælu verðlaun sín. Eins og sjá má, má búast við hinni hörðustu keppni, þar sem til svo Fuglabretíi „Þrasta", Akureyri. mikils er að vinna, og verður óneitanlega gaman að sjá, hvernig fer. Keppnisnefndin, sem annazt hefur um alla framkvæmd keppninnar, er skipuð þess- um skátum: Óskar Pétursson, formaður, Ásta Þorgrímsdóttir, Jenna Jensdóttir, Carl Henning Sveins og Sveinbjörn Þorbjörns- son. Auk þeirra hefur Ingólfur Ármanns- son, framkvæmdastjóri B.Í.S., innt af hendi geysimikið starf í sambandi við keppnina. Til gamans birtum við svo hér með þrjár af myndum þeim, sem komið hafa inn í sambandi við flokkakeppni þessa. Þannig hugsaði enskur skopteikn- ari sér dag ylfing- anna á Jamboree fyrir nokkrum ár- um. í þvi sambandi má minna á, aö einn daginn á landsmótinu i sum- ar er ylfingum boöiö i heimsókn. SKATABLAÐIÐ 65

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.