Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1962, Page 12

Skátablaðið - 01.07.1962, Page 12
Fíá fyrstu árum skátanna á íslandi EFTIR D R. HELGA TÓMASSON Dr. Helgi Tómasson var skátahöfðingi íslands frá 1938 til dauðadags 1958. Á þeim árum skrif- aði liann íjöldamargar ágætar greinar í Skáta- blaðið um málefni skáta. Greinina, sem hér fer á eftir, skrifaði hann í jólablað Skátablaðsins 1952 í tilefni af því, að þá voru liðin 40 ár frá stofn- un fyrsta skátafélagsins hérlendis. Segir hann í henni frá fyrstu árum skátastarfsins á Islandi, en liann var meðlimur þessa fyrsta íslenzka skátafélags. Árið 1911 var orðið skáti ekki til í ís- lenzku máli. Það varð það einhverntíma eftir nýár 1912, er Pálmi heitinn Pálsson yfirkennari við Menntaskólann, stakk upp á því við mig. En mér hafði verið falið að bera undir hann fyrstu íslenzku þýðinguna á skátalögunum. „Scout“ þýddi á íslenzku njósnari eða spæjari, en hvorugt þeirra orða var nothæft yfir hugtak Baden-Powells um „scouts“. Þess vegna lagði Pálmi til, að þetta nýyrði yrði tekið upp. Orðið hefur festst í málinu, svo að nú mun vart nokk- ur íslendingur, sem ekki veit, hvað við er átt með orðinu skáti. Orðið hefur fengið góða merkingu, enn víðari en t. d. dreng- skaparmaður, og þó er það venjulega not- að um unglinga. Að einhverju leyti hljóta skátarnir því að hafa staðið undir nafninu. Ég kynntist skátum fyrst veturinn 1910— 1911 í greinum í „Hjemmet" eða „Familie- journal“, sem ég las hjá föðurömmu minni í matarhléinu, „kortérinu“, er ég var í 2. bekk Menntaskólans. Um vorið 1911 út- vegaði Eymundssons bókaverzlun mér „Scouting for Boys“. Með erfiðismunum komst ég fram úr meginmálinu, og hafði bókina með mér, þegar ég um miðjan ágúst fór 7 vikna ferðalag um óbyggðir, Norð- ur- og Austurlands, með Svisslending, Her- mann Stoll, er ferðaðist hér á vegum land- fræðifélagsins franska. Þá voru engar hand- bækur til hér fyrir ferðalaga, svo „Scouting for Boys“ kom sér vel. Þegar við komum í bæinn, 4. október, sagði móðir mín mér, að danskur piltur, Ingvar Ólafsson, sonur verzlunarstjórans hjá Duus, hefði nýstofn- að hér „spæjarafélag". Gekk ég þegar í það, og voru þá allmargir miðbæjarstrákar komnir í það. „Félag“ þetta var alveg laust í böndunum, og hafði Ingvar hugsað sér það sem flokk úr „Det danske Spejder- korps“, þó aldrei kæmist það svo langt. Lög eða reglur sá ég aldrei neinar eða heyrði. Man ég ekki til, að við kæmum nema 2var saman, áður en Ingvar fór utan um mán- aðamótin okt,—nóv. Fór nú allt í handaskol- um, meðal annars af því, að enginn áhugi var fyrir því, að vera hluti af danska félag- inu, en líklega hefur enginn haft kjark í sér til þess að segja það við Ingvar. Fórum við tvisvar eða þrisvar í göngur upp undir Hamrahlíð, inn að Elliðaám, en engar bein- ar æfingar var um að ræða. Um vorið virt- 38 SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.