Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 15

Skátablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 15
Fór á skíðum í skóla og á skátaíund, en aðeins einn annar kom.“ 1. marz var logn og frost og snjór — útiæfing, fundum væng- brotinn snjótittling og veittum honum fyrstu hjálp.“ 3. apríl tókum við Axel Andrésson hvor sína skátasveit. 1. og 12. maí fóru um 40 skátar á 2 bátum út í Örfirisey. 30. maí æfing og útilega ú íþrótta- vellinum. 21. maí útilega við Elliðaár, 28. júní útilega við Hólmsá. „Tryggvi og 2 aðrir komu með tjaldið kl. 11 á hestvagni. Vöknuðum kl. 6. — Ausandi rigning, á fæt- ur kl. 8 — tveir sendir heim að Elliðavatni að kaupa mjólk, kveiktum eld upp úti og elduðum þar á .. . komum heim kl. 614. 3. júlí: Útilega við Korpúlfsstaðaá. Höfð- um 4-hjóla vagn með tveim hestum fyrir undir farangurinn. Fórum næsta morgun á íþróttamóti í Gufunesi, en þar eð ekki var byrjað kl. 2, héldum við í bæinn og komum heim kl. 7i/2. — Yfir sumarið var þeim, sem í bænum voru, skipað í flokka, svo að þeir gætu haldið áfram að starfa, þó aðrir hefðu farið í sveit. — Stærsti við- burður sumarsins var heimsókn danskra skáta undir forystu Hartvig Möller frá Hellerup. Sá Thomsen kaupmaður um að útvega þeim farkost og annað til ferðalags austur um sveitir, en við tókum á móti þeim hér og létum þá gista á heimilum skáta í bænum, þær tvær nætur, sem þeir dvöldu í Reykjavík. „9. ágúst vaknaði mað- ur kl. 614 að morgni og niður á bryggju í hasti því allir áttu að vera mættir þar kl. 7, en Botnía kom ekki fyrr en 8,10 og þeir dönsku í land kl. 9. Var gengið upp á íþróttavöll og mönnum skipt þar niður.“ Var þeim seinna sýnt um bæinn og gefið tækifæri til þess að æfa sig á hestbaki, áður en lagt skyldi í ferðalagið mánudag þ. 11. ágúst. Fylgdarmenn skátanna voru þeir Baldur Sveinsson ritstjóri og Gunnar Sig- urðsson frá Selalæk. Var förinni heitið aust- ur á Rangárvelli, en við ætluðum svo að mæta þeim á Þingvöllum og hafa móttöku í Reykjavík er þeir kærnu aftur ... Fórum við Páll Andrésson ríðandi til Þingvalla þ. 14. með útileguútbúnað og biðum við þar eftir þeim í 5 daga, en þeim hafði seinkað um tvo daga frá því, sem ráðgert hafði ver- ið. Vorum við síðast lagðir af stað ríðandi á móti þeim, en mættum þeim á Laugar- dalsvöllum. Þeystum við þá til baka til Þingvalla og komum þangað tveim klukku- tímum fyrr eh þeir. Voru þeir heilir á húfi en rass-sárir mjög, svo ferðin sóttist seint. Kl. 4i/ að morgni þess 19. ágúst kom ég á fætur, til þess að fá járnaðan hest minn, kl. 7 lögðum við allir af stað, við Páll og Thomsensbræður fórum á undan og kom- um til Reykjavíkur kl. li/2 en hinir kl. 414. Mættumst svo allir kl. 7 á Austurvelli og kl. 81/2 fóru dönsku skátarnir um borð, en frekara var ekki tími til að gera fyrir þá hér í bænum. 16. nóv. 1913 var skipt í sveitir og flokka fyrir veturinn. Voru 40 mættir á fundinum af 60 félagsmönnum. 13. og 14. des. hélt skátafélagið hlutaveltu í „Bárunni“. Seld- ist ekki allt upp, frekar hjá okkur en öðr- um í þá daga. Brúttó komu inn 682 kr. en nettó ágóðinn varð 520 kr. Var á fundi 17. des. ákveðið að kaupa trommu og 7 lúðra fyrir 270 kr. alls, frá Englandi. — Nokkru seinna byrjuðum við að gefa út blað, sem hét „Skátinn", en af því komu víst ekki nema 3 eða 4 eintök. Það má þannig sjá, að ýmislegt hefur gerzt hjá okkur, þar sem þetta er aðeins sýnishorn af sumu af því, sem ég lief skrif- að hjá mér. Aðrir kynnu sjálfsagt frá ekki minnu að segja og væri vel, ef þeir sem eitthvað hafa í fórum sínum frá fyrstu ár- um skátafélagsskaparins, athuguðu það nánar og segðu frá því, á meðan það ekki er alveg gleymt. SKÁTABLAÐID 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.