Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1962, Side 27

Skátablaðið - 01.07.1962, Side 27
4. Skátinn er vingjarnlegur við alla og bróðir annarra skáta, jafnt rikra sem fá- tækra. Þegar tveir skátar hittast, leitast þeir ávallt við að hjálpa hvorum öðrum. Ef ann- ar er í vanda staddur, tekur hinn þátt í honum eins og bróðir. Skáti má aldrei vera oflátungur. Oflátungur er piltur, sem lítur smáum augum á annan, af því að hann er fátækari eða lægra settur, eða ef fátækur piltur fyrir- framkvæma hana, af því að það er skylda hans. En er hann hefur framkvæmt skipun- ina, getur hann kvartað yfir því við flokks- stjóra sinn, ef honum hefur fundizt skipun- in vera óréttlát. Haldi flokksforinginn fast við sína skoðun, slær skátinn saman hæl- unum og hættir að hugsa um það. Það er agi. 9. Skátinn á ávallt að vera í góðu skapi. Ef hann fær skipun, framkvæmir hann hana með fullu fjöri. Forsíðufyrirsögn (,,haus“) „Skátans". lítur annan af því að hann er ríkari eða í meiri metum. Skátinn tekur ástandinu eins og það er og leitast við að þekkja félaga sinn að hinu bezta. 5. Skáti er kurteis og drengilegur við kon- ur, gamalt fólk og örkumla menn. Hann tekur aldrei þóknun fyrir hugulsemi og hjálpsemi. 6. Skáti gerir daglega eitthvert góðverk. 7. Skáti er vinur dýranna. Ef hann sér dýr kveljast, hjálpar hann því. Hann drep- ur aldrei dýr, nema hann þurfi þess til að bjarga lífi sínu. 8. Hin fyrsta skylda skátans er að hlýða. Hann skilur það, að agi er nauðsynlegur fyrir almenningsheill. Ef hann fær skipun, sem honum er ekki um, verður hann að Hann verður ekki óánægður, þótt illa gangi fyrir honum. Hann reynir heldur að brosa og blístra. Skáti á að venja sig á að vera ávallt hýr, það fjörgar bæði hann og aðra, og sé háski í vændum, sefar hann ávallt þá, sem með honum eru. 10. Skátinn er fégædnn. Hvern eyri, sem hann getur án verið, sparar hann. Hver skáti verður sjálfur að leggja sér til búning. Búningar kosta frá kr. 10.50— 18.00 fyrir skátana. Sveitarstjóra og ann- arra yfirmanna frá kr. 28.00—60.00. Skátabúningurinn er: Brúnn flókahattur, barðamikill; brún úlpa með 2 vösum; bláar eða svartar stuttbuxur; svartir sokkar með grænum fitjum; brúnt leðurbelti; flauta SKÁTABLAÐIÐ 53

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.