Skátablaðið - 01.07.1962, Page 57
landsmótið á Þingvöllum. Einnig mun koma til
íslands um sama leyti Dame Leslie Whateley,
framkvæmdastjóri Alþjóðaskrifstofu kvenskáta,
og mun hún einnig sitja fund kvenskátahöfð-
ingja Norðurlandá í Reykjavík. Munu báðir
þessir kvenskátaleiðtogar vera mjög kærkomnir
gestir íslenzkum kvenskátum, og er ekki að efa,
að heimsókn þeirra mun verða íslenzku kven-
Lady Baden-Powell.
skátastarfi liin mesta hvatning til nýrra átaka.
Eins og kunnugt er, hefur Lady Baden-Powell
tvisvar heimsótt fsland áður, árið 1938 ásamt
Baden-Powell, og aftur árið 1956, þegar skáta-
mótið í Hagavík var haldið í tilefni af komu
hennar.
Nýjar skátabækur.
Bandalag ísl. skáta hefur fyrir skömmu gefið
út tvær nýjar handbækur fyrir skáta. Hin fyrri
SKÁTABLAÐIÐ
Dame Leslie Whateley.
heitir Nýliðaflokkurinn og er ætluð til hlið-
sjónar við kennslu fyrir nýliðaprófið. Hefur
Ólafur Proppé, skátaforingi í Hafnarfirði, þýtt
bók þessa úr norsku, og er i henni brotið upp
á fjöldamörgum nýjungum, sem að góðu gagni
mega koma hverjum skátaforingja. Þess má geta,
að bók þessi er sniðin eftir hinu nýja Nýliða-
prófi, sem stjórn B.f.S. hefur nýlega samþykkt
og birt er annars staðar hér í blaðinu. Er ástæða
til að hvetja alla skátaforingja til að kynna sér
innihald þessarar bókar. Síðari bókin er Skáta-
orðasafn, íslenzkt-enskt og enskt-íslenzkt, sérstak-
lega ætlað þeim íslenzkum skátum, sem eiga
samskipti við enska skáta, og hefur Eysteinn
Sigurðsson tekið það saman. Má búast við, að
það geti orðið ýmsum að gagni á landsmótinu í
sumar, þar sem allmargir brezkir skátar munu
koma þangað. Báðar þessar bækur eru í hentugu
vasabroti.
83